156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:16]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Mig langar bara til að minna á þau mál sem bíða á meðan þessi ríkisstjórn ákveður að hafa bókun 35 á dagskrá sem er vitað að muni taka mikinn tíma í viðbót. Það eru mál eins og kílómetragjaldið sem er mjög gallað mál og ég tek undir með hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni að ég óttast málin sem eiga eftir að koma. Öll þessi risastóru mál munu ekki fá þá umfjöllun sem þau þurfa. Við erum að tala um víxlverkun örorkulífeyris. Í því máli felst að eldri borgarar þessa lands eiga að borga næstum því 8% af sínum lífeyrisgreiðslum til öryrkja á meðan það er ríkisstjórnin sem á að bæta hag öryrkja, ekki eldri borgarar þessa lands. Það mál má ekki renna í gegn. Við erum líka að tala um CRR III þar sem þeir sem minnst hafa á milli handanna eiga að borga hærri vexti af fasteignalánum. Það verður erfiðara fyrir þá að komast inn á markaðinn. Við verðum að hafa tíma í umræðu um öll þessi stóru mál.