156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:18]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Aðeins á mannamáli ætla ég að reyna að útskýra bókun 35 vegna þess að nú er almenningur farinn að taka eftir þessu máli í auknum mæli. Hvað erum við að ræða um? Við erum að ræða um það að í íslenskum lögum í dag, á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er í 3. gr. þeirra laga, sem er orðin yfir 30 ára gömul regla, að finna ákvæði sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Skýra skal lög og reglur“ — þ.e. íslenskar — „að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“

Það á sem sagt að skýra íslenskar reglur og lög í samræmi við samninginn. Þetta er núgildandi ákvæði, búið að vera í gildi hér í 32 ár.

Nú hyggst ríkisstjórnin breyta þessu og setur hér fram frumvarp þar sem segir, með leyfi forseta:

„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.“

Það á sem sagt að breyta þessu, að það eigi að skýra íslensk lög til samræmis við ákvæði EES-samningsins sem innleidd hafa verið í það að þau ákvæði sem innleidd hafa verið úr samningnum skulu ganga framar íslenskum lögum.

Við hér á Alþingi erum sífellt að setja lög. Segjum að það komi ákvæði frá Evrópu sem við innleiðum sem segir að raforka eigi að vera svona eða hinsegin í öllu landinu og við innleiðum það. Síðan líða einhver ár og Alþingi taki sig svo til vegna einhverra aðstæðna á einhverju ákveðnu landsvæði á Íslandi að haga þessu með öðrum hætti, t.d. á Vestfjörðum af því að þar sé uppi eitthvert ástand, og búi til lagareglur sem verði samþykktar hér á Alþingi og fari svo út í samfélagið og það lagi umhverfi raforkunnar á Vestfjörðum á einhvern ákveðinn hátt, enda hefur Alþingi ákveðið það. Þá væri einhver Austfirðingur eða Norðlendingur sem er ósáttur við þetta, að Vestfirðingar njóti einhvers forgangs að þessu leytinu til, hann verður óánægður með þetta og fer fyrir dómstóla með þetta. Hvað gerist þá? Þá er þessari íslensku lagareglu sem var samþykkt hér á Alþingi bara hent í ruslið vegna þess að Evrópureglur hafa áður kveðið á um að þetta skuli vera með ákveðnum hætti á öllu landinu. Þetta þýðir að mínu viti, herra forseti, einfaldlega það að íslenska lagasetningarvaldið, Alþingi, sem var nýbúið að setja þessa reglu um Vestfirði er að engu haft. Hvað þýðir þetta á mannamáli? Þetta þýðir það að Alþingi hefur í raun ekki lengur að fullu lagasetningarvald. Svo einfalt er það. Það hefur ekki vald til að setja lög að öllu leyti vegna þess að Evrópureglur ganga framar.

Í stjórnarskrá Íslands, 2. gr., er ákvæði sem segir að Alþingi fari með löggjafarvaldið ásamt forseta Íslands. Alþingi fari með löggjafarvaldið. Fræðimenn hafa talið að þetta nýja ákvæði um forgang Evrópureglna brjóti í bága við þessa grein stjórnarskrárinnar. Eðlilega, herra forseti. Við Íslendingar höfum tekið til varna í gegnum árin. Við erum búin að vera í 32 ár með þetta svona og við tókum til varna. Ég er með hérna bréf frá 2021 þar sem við tókum mjög til varna og ég ætla að lesa aðeins upp úr því, með leyfi herra forseta. Þar stendur:

„Í íslensku stjórnarskránni er ekkert ákvæði um framsal eða umboð ríkisvalds til alþjóðlegra yfirþjóðlegra stofnana.

Síðan segir, með leyfi herra forseta:

„Íslenska stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir að ágreiningur milli ákvæða almennra laga verði leystur með öðrum hætti en að beita viðurkenndum lögskýringarreglum. Hún veitir heldur ekki löggjafanum heimild eða svigrúm til að veita tilteknu almennu lagaákvæði varanlegan forgang yfir önnur lög.“

Það er það sem verið er að gera hér. Svo koma menn hér upp og segja að þetta varði ekki stjórnarskrána, að við séum ekki að verja stjórnarskrána. Það er bara hér.

Herra forseti. Ég óska eftir því að vera settur aftur á mælendaskrá.