156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:23]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Við ræðum hérna um bókun 35. Það er umræða um hvort þetta frumvarp standist stjórnarskrá. Þetta er umræða um fullveldi þjóðarinnar og mögulegt valdframsal. Eftir því sem við höfum rætt þetta meira kemur meira í ljós en okkur hefur einnig verið bent á það, hv. þingmönnum Miðflokksins, að málið sé lagatæknilegt, það sé um margt flókið og ég get tekið undir það. Í því ljósi höfum við verið að reyna að kannski einfalda stundum og taka dæmi. Ég tók dæmi í gær og mig langar að taka nokkur dæmi. Við höfum kannski verið að taka svolítið af alvarlegum dæmum um hvaða áhrif það gæti haft þegar erlendar gerðir, EES-gerðir, ganga framar innlendum lögum sem eru sett hér. Þá erum við auðvitað að tala um EES-gerðir sem hafa verið leiddar í íslensk lög. Þegar þetta stangast á, EES-gerðirnar og íslensku lögin, þá er það ekki sjálfsagt eins og þessi ríkisstjórn heldur fram að það verði einhvers konar neytendavernd í því að vera búin að samþykkja bókun 35 því að það getur alveg brugðið til beggja vona hvort þetta sé neytendavernd eða ekki. Eins og við vitum þá koma nú gerðirnar á færibandi frá Brussel og það er ekki sjálfsagt að við setjum verri lög hér heldur en gerðirnar og ef svo væri þá er eitthvað mikið að hér inni á Alþingi Íslendinga. Þá held ég að við þyrftum að hysja upp um okkur buxurnar og setja betri og vandaðri lög, en það er reyndar hætt við því á þessu þingi að lagasetning verði ekki svo vönduð miðað við vinnubrögðin. En fyrst og fremst þurfum við alltaf að vanda til verka þegar við setjum lög í landinu.

Ég ætla að taka dæmi, einfaldara dæmi en það sem við höfum kannski verið að taka. Gefum okkur það að við Íslendingar myndum af einhverjum ástæðum vilja setja lög um hversu mikið salt mætti vera á móti hveiti þegar bakað er brauð. Ef þú ert með bakarí þá eru til einhver lög um að þú megir ekki setja meira en tvö grömm af salti á móti 100 grömmum af hveiti. Það hljómar kannski skrýtið að setja þannig lög. En það er ekki skrýtið í Brussel. Þeir eru með reglugerð fyrir flestallt. Þeir ákváðu nefnilega að setja reglugerð þar sem þú mátt einungis hafa eitt gramm af salti á móti 100 grömmum af hveiti og það varð allt vitlaust í Þýskalandi vegna þess að bakarar þar nota yfirleitt eitt og hálft gramm af salti á móti 100 grömmum af hveiti. Þetta er það sem við erum að eiga við. Við munum aldrei vita hvenær við þurfum að setja fyrirvara inn í íslensk lög.

Þessi fyrirvari sem ég er að tala um er helsta vörn þessarar ríkisstjórnar. Hún segir alltaf að það sé allt í lagi að samþykkja þetta af því að við setjum bara fyrirvara inn í hvert lagafrumvarp sem við gerum. Ég held að engan hefði órað fyrir því að setja fyrirvara inn í frumvarp um það hversu mikið salt mætti vera á móti hveiti ef við værum að semja slík lög þannig að það er alveg á hreinu að við munum aldrei vita hvar við þurfum að setja þessa fyrirvara. Þá myndi kannski einhver segja: Eigum við þá ekki bara að setja fyrirvara alls staðar? Hv. þingmenn Miðflokksins myndu sennilega gera það til að hafa vaðið fyrir neðan sig. En hefur einhver trú á því að hv. þingmenn þessarar ríkisstjórnar muni gera það? Staðan er einfaldlega þannig að í reglugerðum sem koma í dag þá vilja þeir yfirleitt ekki breyta neinu þó að það sé augljóst að það séu hagsmunir Íslendinga að eitthvað sem er í gerðunum sé ekki tekið inn. Hagsmunagæslan er léleg. Þessir flokkar eru ekki tilbúnir til þess að segja að bókun 35 hafi verið innleidd á sínum tíma með þeim hætti sem hún var innleidd af því að við vildum ekki innleiða hana eins og hún er í dag og ég hef ekki nokkra trú á því að þessir hv. þingmenn muni setja svona fyrirvara inn í öll frumvörp.

Það er reyndar eitt í þessu ef við tökum fleiri dæmi. Hvað ætla hv. þingmenn Samfylkingarinnar að gera varðandi Ríkisútvarpið ef það kemur nú einhver reglugerð sem segir: Þið megið ekki vera með þessa ríkisstyrki? Heyrðu, sú reglugerð er til. Mig grunar að það væri kannski undantekningin hjá þessari ríkisstjórn, að henni dytti þá í hug að íslensk lög ættu að gilda þegar er verið að verja fjárausturinn í Ríkisútvarpið. Svo munu gerðir hafa áhrif á Landsvirkjun. Þetta mun hafa áhrif víða. Við vitum ekki hvar þetta mun hafa áhrif af því að þetta á að ná til allra gerða sem hafa komið og munu koma.

Hæstv. forseti. Ég bið þig að setja mig aftur á mælendaskrá.