156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:03]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Það er alveg rétt, við eigum öll okkar góðu og slæmu daga og mér er algerlega að meinalausu að biðjast afsökunar hafi hv. þingmaður tekið orðum mínum illa, sem ég heyri að hún gerði. Ég viðurkenni að það kom illa við mig það sem mér fannst vera hugmyndir þingmannsins um ætluð stjórnarskrárbrot og mér fannst sérstakt í ljósi þess að þarna var ákveðið mál sem lá fyrir í áformaskjali frá formanni Framsóknarflokksins á sínum tíma, að geta litið málið þessum augum í ljósi þess að um eitt og sama málið var að ræða. En ég geri ráð fyrir því að þingmaður og ráðherra hafi báðar andað rólega síðan og það er sársaukalaust af minni hálfu að biðjast afsökunar á þessu.