156. löggjafarþing — 63. fundur, 16. júní 2025.
orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir afsökunarbeiðnina, hún er móttekin. Maður er maður að meiri að gera slíkt þannig að ég kann að meta það, virkilega. En bara svo það sé alveg kýrskýrt hér og fest í þingskjöl þá var hér enginn að ásaka einn eða neinn um eitt eða neitt heldur var einfaldlega vitnað í umsagnir í tengslum við málið og spurt um já eða nei svar varðandi faglegt mat dómsmálaráðherra. En góður bragur á þessu og takk kærlega fyrir, afsökunarbeiðni móttekin.