156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að heyra þessi orðaskipti hv. þingflokksformanns Framsóknarflokksins annars vegar og hæstv. dómsmálaráðherra hins vegar. Það var auðvitað fleira sem svona steytti uppi á skeri hér á nokkurra daga tímabili og öll þurfum við einhvern veginn að finna leið til að anda í kviðinn en auðvitað hvessir af og til á svona átakavettvangi eins og hér er. En það er auðvitað líka eitt sem ég verð að viðurkenna að jafn ágæt — nú er ég að leita að haganlegu orði svo ég kveiki ekki í salnum út af öðru. Það eru atriði sem komu fram er varða orðið sakamálarannsókn, í tengslum við eldhúsdagsumræðu, sem mig langar til að beina til virðulegs hæstv. dómsmálaráðherra að velta vöngum yfir hvort hafi verið passandi að yrðu sett fram í því samhengi sem þar var gert. Þá erum við búin að haka við ansi mörg, alla vega tvö box af þeim sem æskilegt væri að haka við ef þetta fer vel.