156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Ég þakka þingflokksformanni Miðflokksins fyrir áhyggjur hans af líðan þingmanna Sjálfstæðisflokksins. (Gripið fram í.) Ég nefndi í eldhúsdagsumræðum að mér þætti gott að við ættum fjármálaráðherra sem veit hvað hann syngur. Ég nefndi að þessari ríkisstjórn tókst að selja banka án þess að samfélagið færi allt á hliðina. Við munum það hvernig síðasta bankasala var og það er kannski bara sjálfsagt að rifja það upp. Það leiddi til afsagnar bankastjóra. Það leiddi til afsagnar fjármálaráðherra. Það leiddi til hæstu sektar í sögu Fjármálaeftirlitsins í Íslandssögunni allri. Það leiddi til álits umboðsmanns Alþingis um vanhæfi ráðherra. Það leiddi til skýrslu Ríkisendurskoðunar. En auðvitað er það alveg rétt að það fór enginn í fangelsi og það er bara fín athugasemd og ég skal glöð gangast við því að svo var ekki. En var salan farsæl, sem var nú kannski punkturinn í þessu öllu, hafði hún pólitískar og fjárhagslegar afleiðingar? Svarið við því blasir við okkur öllum.