156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:07]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir að gera það alveg ljóst að auðvitað átti sér ekki stað nein sakamálarannsókn eftir síðustu bankasölu. En ég held líka að það sé ágætt í ljósi sögunnar að við munum það að síðast var bankinn seldur í samræmi við lög sem síðasta ríkisstjórn, vinstri ríkisstjórn, hafði samið. Það fór þá fyrir þingið, tvær þingnefndir, og mörg okkar sem hér inni sátum tókum þátt í því ferli. Því miður fóru ákveðnir hlutir úrskeiðis þar. En núna samþykktum við lög, sem reyndar voru unnin í tíð síðustu ríkisstjórnar, og núverandi hæstv. ríkisstjórn kláraði að selja Íslandsbanka í samræmi við þau lög sem sú ríkisstjórn samþykkti. Það gekk bara nokkuð vel og ég segi bara til hamingju með það og við getum öll glaðst yfir því að salan hafi bara gengið ágætlega eftir allt saman. En það er líka ágætt að muna í sögulegu samhengi að það eru þó alla vega lögin sem voru samin af síðustu ríkisstjórn.