156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Bara svo það kom fram, því að hæstv. dómsmálaráðherra sá enn eina ástæðuna til að reyna að nota einhverjar smjörklípuaðferðir á okkur Sjálfstæðismenn sem henni er nú nokkuð annt um og gerir mjög reglulega, þá vil ég bara að það komi fram að okkur líður ekki illa yfir því, (Gripið fram í.) alls ekki. Þegar fólk er að gera lítið úr sjálfu sér og öðrum flokkum og kemur fram með þeim hætti sem hæstv. dómsmálaráðherra gerir iðulega í allri umræðu í okkar garð þá veldur það ekki vanlíðan hjá okkur. Frekar veldur það einhverri vorkunn gagnvart því hvernig hæstv. dómsmálaráðherra virðist líða í sínum störfum, bæði sem þingmaður áður en hún fór í ráðherrastól og núna sem hæstv. ráðherra. Auðvitað sæmir það síður ráðherra að vera á þessum vettvangi að gefa ýmislegt í skyn sem engar innstæður eru fyrir, svo sem það að sakamálarannsókn (Forseti hringir.) hafi farið fram. Hún sem fyrrverandi saksóknari, löglærð manneskja sem situr í þessu embætti í dag, (Forseti hringir.) veit betur. En hún á alla okkar samúð.