orð dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Það er auðvitað þannig að það gengur oft ýmislegt á í þessum sal eins og við þekkjum öll. Ég held að það geti nú ansi margir tekið til sín og ekki ætla ég að undanskilja sjálfan mig í því að stundum getum við kannski vandað okkur betur í samskiptunum hér úr þessum ræðustól. Ég fagna því að við séum að taka einhverja umræðu um það. En ég vildi bara halda því til haga, og ég undanskil sjálfan mig ekkert í því, að þetta togast auðvitað á í báðar áttir. Við skulum alveg vera meðvituð um það líka að hér hafa fallið orð, ekki síst um helgina, mjög alvarleg gagnvart ríkisstjórn og ráðherrum og öðru. Það þarf þá að vera svolítið á hreinu að við þurfum bæði, stjórnarandstaðan og stjórnarliðar, að vanda okkur betur. Nú eru í gangi viðræður um það hvenær hægt er að klára þingstörfin og ég vona að það allt saman gangi vel. En ég held að við þurfum öll að taka það til okkar, hvorum megin víglínunnar sem við erum, að samskipti þurfa þá að lagast báðum megin.