vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Það er grundvallaratriði í lýðræðisríki að löggjafinn fái réttar, skýrar og fullnægjandi upplýsingar áður en hann tekur afstöðu til lagafrumvarpa. Í umræðum um veiðigjaldafrumvarpið hefur komið fram sífellt skýrari mynd. Alþingi hefur ekki fengið heildstæðar og réttar upplýsingar. Staðreyndirnar í þessu máli eru grafalvarlegar. Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp sem á að tvöfalda veiðigjald með rökstuðningi sem reynist ónákvæmur, óskýr og í sumum tilfellum beinlínis rangur. Nýjustu gögn frá Skattinum sýna að ríkið mun innheimta rúmlega 26 milljarða kr. í veiðigjöld á þessu ári. Það er tvöföldun á gjaldinu og rúmlega það.
Það er ekki aðeins fjárhæðin sem skiptir máli heldur vinnubrögðin. Í gögnum frá Skattinum sem lögð voru fyrir atvinnuveganefnd var miðað við lægri tölur en birtust síðar opinberlega án þess að fram kæmi hvaða forsendur hefðu breyst, hvers vegna og hvenær. Samhliða koma fram fullyrðingar í frumvarpinu sjálfu um erlenda sérfræðigreiningu sem aldrei átti sér stað, aldrei. Forsætisráðherra ber pólitíska ábyrgð á öllum störfum ríkisstjórnarinnar. Hún er sú sem á að standa vörð um fagleg vinnubrögð, gagnsæi og virðingu þingsins. Alþingi getur ekki fjallað af ábyrgð um mál, hvað þá tekið upplýsta afstöðu þegar upplýsingar eru annaðhvort rangar, óljósar eða hreinlega ekki lagðar fram. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Er þetta sú stjórnsýsla sem hún vill standa fyrir? Hver er hennar afstaða til þessara vinnubragða og hvað hyggst hún gera til að tryggja að slík málafærsla endurtaki sig ekki?