vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég veit satt best að segja ekki hversu djúpt ég á að fara inn í þetta mál. Ég fékk inn í mitt pósthólf, líklega eins og fleiri þingmenn, fyrir helgi alvarlegar ásakanir á hendur atvinnuvegaráðherra og ráðuneytinu um að þau séu að leyna gögnum. Þar er verið að svara fyrir sig. Það er alvarlegt þegar stofnanir í samfélaginu eru sakaðar um að leyna gögnum fyrir einhverjum. Getum við ekki haldið okkur við staðreyndir máls og pólitískan ágreining? Það vita það allir hér inni að minni hlutinn vill banna meiri hlutanum að hækka veiðigjöld. Það er það sem þetta snýst um. Þetta snýst ekki um krónur og aura. Það sem við munum gera af fullum þunga er að klára þetta mál, að fylgja eftir meirihlutavilja þjóðar. Við munum ekki leyfa minni hlutanum að banna okkur að gera breytingar í þessum málaflokki. Um það snýst þetta mál hér inni. Við skulum hafa það alveg á hreinu.