156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

verklag systurflokka Samfylkingar á Norðurlöndum.

[15:21]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Fyrir kosningar sagði núverandi forsætisráðherra að viðkomandi ætlaði að verða forsætisráðherra allrar þjóðarinnar og það ætti ekki að kljúfa þjóðina með erfiðum umdeildum átakamálum. Staðan í dag á þinginu hjá hinni svokölluðu verkstjórn, hinni miklu verkstjórn nýrrar ríkisstjórnar, er hins vegar að flest mál eru komin í uppnám vegna tímaleysis. Starfsáætlun þingsins búin, 16. júní í dag. Í gær var haldinn þingfundur á sunnudegi. Margt minnir mig á tímabilið 2009–2013, ríkisstjórn Samfylkingar undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þá voru hins vegar aldrei þingfundir á sunnudögum. Þó hafði orðið bankahrun og efnahagskrísa sem á þurfti að taka. Það var þá en nú er engin þjóðarvá, eina váin er verkstjórnarleysi hjá núverandi ríkisstjórnarmeirihluta.

Ég vil skiptast á skoðunum við hæstv. forsætisráðherra sem hefur oft talað um það hvað hún sé í góðu sambandi við systurflokkana á Norðurlöndum, stjórnendur sósíaldemókrata og systurflokka Samfylkingarinnar þar. Þar er lenska í öllu verklagi sem ríkisstjórn kemur þar að, þegar hún á samskipti við þingið, sérstaklega er það í Danmörku, líka í Noregi og að einhverju leyti í Svíþjóð, að tala saman og kalla saman alla þingflokka þegar um er að ræða stórar kerfisbreytingar eða skattabreytingar til að gera það líklegra að þær haldi nú í einhvern tíma jafnvel eftir að sú ríkisstjórn er farin frá. Þetta hefur gengið býsna vel í þessum löndum. Þetta eru einhver mestu velferðarríki og hagsældarríki heimsins. Þau eru ekki í svona byltingum, að tvöfalda veiðigjöld og rífast um hvort að krónur og aurar séu svona vegna þess að það er tekið samtal við alla. Þess vegna er spurning mín til hæstv. forsætisráðherra: Hefur hæstv. forsætisráðherra ekkert talað við oddvita Samfylkingar, systurflokkana á Norðurlöndunum, um þetta, hvort það sé ekki líklegra til árangurs hér á Alþingi að taka slíkt samtal, reyni að breikka hópinn á bak við breytingar, fá meiri samvinnu, meiri samheldni og jafnvel minni sundrungu í samfélaginu?