verklag systurflokka Samfylkingar á Norðurlöndum.
Frú forseti. Fólk þreytist ekki á að ræða um verkstjórn þessarar ríkisstjórnar enda er það augljóst, sama hver staðan er hér í þinginu á sunnudegi. Hér er búið að taka fjórar skóflustungur að hjúkrunarheimilum. Hér er búið að selja Íslandsbanka. Það er búið að ganga frá Íbúðalánasjóði. Það er búið að fara strax af stað í breytingar í orkumálum. Það eru að fara hérna í gegn breytingar er snúa að vatnshloti, uppáhaldsmáli þingmanna hér inni. Það gengur vel.
En það er svolítið merkilegt að hlusta á þennan málflutning um lensku systurflokka á Norðurlöndum, komandi frá fólki í minni hluta og hér hefur verið ein mesta málþófsandstaða frá hruni. Þetta er hægt að skrásetja og skoða tölur. Það þarf ekki annað. Fólk þarf ekki að hrista höfuðið hér inni. Ég er ekki að taka þetta upp hjá sjálfri mér. Þið getið skoðað tölurnar.
Ég get sagt ykkur einmitt eitt af mínu samstarfi við mína samstarfsflokka á Norðurlöndum. Í Færeyjum um daginn hitti ég ráðherra útlendingamála. Þau voru að tala um stöðuna í Danmörku — þetta var útlendingamálaráðherra Danmerkur sem var á fundi jafnaðarmannaflokksins þar. Þar var hann að tala um að það hefðu verið stærstu breytingarnar og ein erfiðustu mál sem tekin hefðu verið í danska þinginu í langan tíma, svo erfið umræða um hækkun lífeyristökualdurs. Og hann stendur í pontu og segir: Ég veit að þið trúið því ekki en við ræddum málin í sex klukkustundir. [Hlátur í þingsal.] Lítið í eigin barm, þið sem vitnið hér til starfsaðstæðna á Norðurlöndum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
Kannski það eina sem líkist því ástandi sem hér er í þinginu er hegðun minni hlutans er varðar málþóf eins og var haldið til streitu kirfilega á þeim tíma sem Jóhanna Sigurðardóttir var hæstv. forsætisráðherra.
Hér er vilji til verka, það er vilji til samstarfs en það er ekki vilji til þess að láta eins og það sé eðlilegur hlutur að vera í stórkostlegu málþófi í stórum málum til þess eins, með leyfi forseta, ég leyfi mér að fullyrða, að banna ríkisstjórninni að leiða í gegn ákveðnar breytingar sem er stór lýðræðislegur meirihlutavilji fyrir. Það er ríkisstjórn í landinu í dag sem fékk umboð til verka og minni hlutinn verður að sætta sig við það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (ÞSv): Ég minni hæstv. forsætisráðherra á að ávarpa alltaf forseta.)