verklag systurflokka Samfylkingar á Norðurlöndum.
Virðulegi forseti. Ég hélt að hæstv. forseti ætlaði að áminna forsætisráðherra um að svara spurningum. En ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að fara yfir öll þau mál sem við í fyrri ríkisstjórn höfum undirbúið til þess að þau geti síðan framkvæmt, reyndar í flestum tilvikum mál sem þau voru á móti á síðasta kjörtímabili en hafa skipt um skoðun, sem betur fer því að batnandi fólki er best að lifa. Sú staðreynd þegar hæstv. forsætisráðherra segir að það hafi tekið aðeins sex klukkutíma og tekið langa umræðu í þingsal í tilteknu þingi á Norðurlöndunum er það oft vegna þess að það samtal hefur einmitt átt sér stað við flokkana fyrir utan þingsalinn. Það er með öðrum orðum búið að taka allt það samtal um það hvort og hverjir eru tilbúnir að vera með í þessar breiðu breytingu. Auðvitað er það stundum að það eru minnihlutastjórnir sem þurfa á þessu að halda og þannig byrjaði þetta. En staðreyndin er sú að þetta hefur gengið það vel að meirihlutastjórnir í þessum löndum hafa haldið áfram að gera þetta vegna þess að það styður auðvitað miklu frekar þær kerfisbreytingar, skattbreytingar eða breytingar sem menn eru að gera á samfélaginu, jafnvel þó að þeir þurfi að sætta sig við að fara aðeins skemur, (Forseti hringir.) að það séu fleiri flokkar á bak við það. Það var það sem ég óskaði eftir að hæstv. forsætisráðherra svaraði mér en ekki þetta bla og bla um sjálfgleði og hvað þau eru frábær. Við vitum það.