gagnrýni á frumvarp um veiðigjald.
Frú forseti. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald sem nú liggur fyrir Alþingi hefur verið gagnrýnt harðlega af fjölmörgum aðilum. Bent er á að ákvæði þess kunni að hafa í för með sér íþyngjandi áhrif fyrir landsbyggðirnar og smærri útgerðir með neikvæðum afleiðingum fyrir atvinnuöryggi og markmið í byggðastefnu. Enn fremur óttast margir að breytingarnar geti grafið undan rekstrargrundvelli sveitarfélaga sem reiða sig á sjávarútveg, t.d. vegna samdráttar í tekjum þeirra og aukinna útgjalda ef störfum fækkar. Auk þess hefur skortur á haldbærum gögnum, faglegum greiningum og heildstæðu mati á áhrifum frumvarpsins verið gagnrýndur, sérstaklega með tilliti til áhrifa á landsbyggðirnar og atvinnulífið utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er gagnrýnt að ekki hafi verið haft nægilegt og víðtækt samráð við hagaðila og sveitarfélög við undirbúning málsins. Málsmeðferðinni hefur aukinheldur verið lýst sem of hraðri og óvandaðri þannig að hvorki þinginu né almenningi gefist svigrúm til að ræða ítarlega hugsanlegar afleiðingar þessarar löggjafar.
Í ljósi framangreindrar gagnrýni og þeirra athugasemda sem borist hafa spyr ég hæstv. atvinnuvegaráðherra hvort það sé ekki hreinlega skynsamlegt að fresta afgreiðslu frumvarpsins og nýta næstu mánuði til að vinna málið betur og ígrunda afleiðingar þess áður en áfram er haldið.