gagnrýni á frumvarp um veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingflokksformanni Framsóknar fyrir fyrirspurnina. Þingmaðurinn fór ágætlega yfir þau rök sem lítill minni hluti þjóðarinnar og síðan minni hlutinn hér á þingi vill nota til að stöðva þetta mál, þessa leiðréttingu. Það er svo sem engu við það að bæta öðru en að það er búið að vísa þessum fullyrðingum og þessari gagnrýni til föðurhúsanna á þann hátt sem hægt er með framlagningu gagna, með því að bregðast við og með því að svara ítrekað röngum fullyrðingum og ásökunum um að greiningar skorti. Það er kannski allt í lagi að hafa í huga fyrir hv. þingmann og hv. þingheim hér að frá því að lög um veiðigjöld voru sett árið 2012 hefur þeim býsna oft verið breytt til hækkunar, einstaka sinnum til lækkunar. Aldrei hefur verið lagt til grundvallar jafn mikið magn af upplýsingum og greiningum og nú er. Ég ætla reyndar að leyfa mér að fullyrða að þótt lagðar séu saman þær greiningar sem liggja fyrir á hinum fyrri stigum þá nái þær ekki því magni sem hér hefur verið lagt til grundvallar. Það er staðan.
Síðan langar mig líka að benda á eitt. Þegar við leggjum af stað í þessa vegferð var ætlunin að fara í þessa leiðréttingu, að láta raunverulegt aflaverðmæti ráða för um útreikning veiðigjalda eins og ég held að fyrir mörgum hafi verið ætlunin á sínum tíma. Það lá ekkert fyrir hver hækkunin yrði. Það er aðferðafræðin sem á að laga og henni erum við að breyta hér með. Það er síðan þannig að í meðförum meiri hluta atvinnuveganefndar var komið með breytingartillögur sem ég styð. Mér finnst þær góðar og þær mæta mjög vel faglegum áhyggjum þeirra aðila og málefnalegri gagnrýni lítilla og minni útgerða (Forseti hringir.) um að þetta sé íþyngjandi leiðrétting á rekstri þeirra. (Forseti hringir.) Því er mætt með breytingartillögum, þannig til að súmmera upp svarið: (Forseti hringir.) Nei, ég tel að við höfum teygt okkur mjög langt í þessari vinnu til að koma á móts við málefnalega gagnrýni og við munum halda áfram með málið.
(Forseti (ÞSv): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)