gagnrýni á frumvarp um veiðigjald.
Frú forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina en ég er nú orðin eilítið rugluð ef það er orðið tilefni til einhvers konar hæðnislegar yfirlýsingar hjá hv. þingmanni þegar meiri hluti atvinnuveganefndar gerir það sem hv. þingmaður er að kalla eftir og teygir sig í átt til að búa til sátt um málið. Þannig að þetta er vægast sagt komið í hring.
Vegna þess hvernig hv. þingmaður opnaði orðræðu sína með tilvísun, sem ég kannast nú við þó að hún eigi ekki heima hér, þá verð ég að segja að sú lítilsvirðing sem þeir sem tala eins og vilji yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar, sem vill sanngirni og réttlæti í þessu máli, skipti ekki máli, af því að hver vill ekki borga lægri skatta og láta aðra borga hærri skatta — ég kann ekki við þessa lítilsvirðingu í garð þjóðarinnar. Ég veit ekki betur en að langflestir landsmenn borgi sína skatta og skyldur eins og þeim ber að gera af því að þeir vilja byggja hér upp samfélag þess eðlis að hér sé grunnþjónusta okkar og samfélagsinnviðir í lagi. Það sem verið er að gera með (Forseti hringir.) þessu máli er að segja: Við viljum líka að atvinnugrein sem hefur aðgang, án endurgjalds að mestu leyti, (Forseti hringir.) að takmarkaðri auðlind sem þjóðin á taki þátt í því með okkur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)