virkjunarkostir í nýtingu.
Virðulegur forseti. Í umhverfis- og samgöngunefnd höfum við verið með til umræðu 3. áfanga rammaáætlunar en þar voru samtals 3.517 GWst undir og fimm virkjunarkostir. Í tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar er lagt til að 1.797 GWst fari í nýtingu en tillaga meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar er sú að 760 GWst fari í nýtingu. Urriðafossvirkjun sem er 1.037 GWst er tekin úr nýtingu í biðflokk og Héraðsvötn sem eru 1.090 GWst eiga að fara í vernd. Bara tveir af fimm virkjunarkostum sem eru núna til umræðu eiga að fara í nýtingu og þetta eru tveir minnstu virkjunarkostirnir, Skrokkalda og Holtavirkjun. Því spyr ég hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: Finnst ráðherra það ásættanleg niðurstaða að einungis rúmlega 20% af þeim gígavattstundum sem voru til umræðu fari í nýtingu, tveir minnstu kostirnir? Finnst hæstv. ráðherra þetta ásættanleg niðurstaða úr nefndinni?