virkjunarkostir í nýtingu.
Virðulegur forseti. Ég lagði fram á Alþingi tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar óbreytta, enda hefðu allar tilfærslur af minni hálfu, vegna skilyrða um 12 vikna umsagnartíma, gert okkur ómögulegt að klára rammaáætlun á þessu þingi. Ég er mjög ánægður með þær breytingar sem eru að verða hjá umhverfis- og samgöngunefnd. Það er fullkomlega málefnalegt að setja Urriðafossvirkjun í biðflokk í stað nýtingarflokks á meðan við erum að sjá áhrifin af þeim mótvægisaðgerðum sem ráðist var í vegna laxastofnsins. Það liggur líka fyrir að það verður aldrei ráðist í Urriðafossvirkjun fyrr en bæði Hvammsvirkjun og Holtavirkjun eru komnar í gagnið þannig að það er ekki breyting sem ég tel að skipti neinu máli þannig séð varðandi orkuöflun í landinu á næstu árum. Það er hins vegar mín skoðun að Urriðafoss eigi að vera í nýtingarflokki rammaáætlunar. Svo gerir líka nefndin þá breytingu að færa Kjalölduveitu úr verndarflokki í biðflokk, sem er auðvitað einhver hagkvæmasti virkjunarkostur sem til er og ef það endar þannig að við klárum Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun að lokum þá er mikilvægt að halda þessu opnu og rannsaka mjög kirfilega þann möguleika að geta aukið framleiðslugetu alls virkjunarkerfisins á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu enn frekar með Kjalölduveitu og þannig betri miðlun í Þórisvatni. Þetta er mikilvægt upp á orkuöryggi þannig að ég er mjög ánægður með að nefndin taki þetta skref, að halda þessu opnu og gera frekari rannsókn á þessu.
En hvað með Héraðsvötnin? Er það ómálefnalegt að láta eitt stærsta og gróskumesta votlendissvæði landsins vera? Þetta er svæði með umfangsmiklum flæðiengjum, viðkvæmum vistkerfum og fjölbreyttu fuglalífi. Er það ómálefnalegt af meiri hlutanum að telja þennan kost eiga heima í verndarflokki rammaáætlunar? Það finnst mér alls ekki. Mér finnst það bara fullkomlega málefnalegt og mér finnst það ábyrg afstaða, (Forseti hringir.) þannig að ég fagna þessum breytingum sem er verið að gera. (Forseti hringir.) Ég tel að þær séu ábyrgar, að það sé ábyrgt að færa Kjalölduveitu úr verndarflokki í biðflokk (Forseti hringir.) en bíða með Urriðafoss á meðan við sjáum áhrifin af mótvægisaðgerðum þar.