156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

virkjunarkostir í nýtingu.

[15:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég las nú einmitt tillögu frá minni hlutanum um að Héraðsvötnin færu beint í nýtingu, sem hefði bara verið glannalegt og ómálefnalegt að mínum dómi. Við skulum rifja aðeins upp hvað það þýðir að eitthvað er sett í verndarflokk. Það þýðir að þá hefst undirbúningur að friðlýsingu sem venjulega hefur tekið mörg, mörg ár og fram að því getur verkefnisstjórn endurmetið viðkomandi kost að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni og jafnvel eftir að búið er að friðlýsa svæði þá hefur ráðherra heimild til að afnema eða breyta friðlýsingu ef brýnir samfélagshagsmunir krefjast þess. En við skulum bara rifja upp hvers vegna það er sem verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur ekki bara einu sinni heldur tvisvar lagt til að Héraðsvötnin fari í verndarflokk. Það er vegna þess að þetta er svæði sem fær hæstu einkunnir af nær öllum svæðum sem hafa nokkurn tímann verið skoðuð í rammaáætlunarferlinu. Þess vegna hefur verkefnisstjórn tvívegis lagt þetta til og minn uppáhaldssjálfstæðismaður, hv. þm. Ólafur Adolfsson, sat nú í þeirri ágætu verkefnisstjórn sem lagði þetta til og forveri minn í umhverfisráðuneytinu, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, reyndi tvisvar sinnum að fara með þessa tillögu verkefnisstjórnar óbreytta gegnum ríkisstjórn. Það tókst ekki. Við erum að klára þetta mál. (Forseti hringir.) Munurinn á þessari ríkisstjórn og þeirri sem áður sat er sú að við erum ekki bara að leggja fram eina rammaáætlun sem við ætlum að hreykja okkur af allt kjörtímabilið, við ætlum að klára nýja rammaáætlun á hverju einasta löggjafarþingi þessa kjörtímabils.