156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

staða rannsóknar á gagnaleka.

[15:44]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er liðinn um einn og hálfur mánuður síðan RÚV fjallað um í fréttaþætti sínum um stórfelldan gagnaleka eða öryggisbrest eins og það kallast í löggjöf, á gögnum er varða ekki bara þá sem á sínum tíma höfðu stöðu grunaðra heldur einnig þeirra sem höfðu stöðu vitnis og alls kyns þriðja fólk, eins og það er kallað. Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra með hvaða hætti hafi verið reynt að ná utan um málið á þessum tíma. Við vitum öll að lögreglunni á Suðurlandi var falið eitthvert verkefni í þessu sambandi. En ég er meira að velta fyrir mér þáttum eins og t.d. hvort þessi öryggisbrestur hafi verið tilkynntur til Persónuverndar, lögum samkvæmt, og þá einkum og sér í lagi hvort, ef má segja fórnarlömbum í þessu, eða eins og það heitir kannski í löggjöfinni, skráðum aðilum, hefur verið sérstaklega tilkynnt um þennan öryggisbrest sem varð af hálfu þeirra embætta sem heyra undir hæstv. ráðherra, þ.e. lögreglunnar. Svo vildi ég líka velta því upp ef það gefst færi á að svara því núna: Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til þess að nálgast þessi gögn? Hefur einhver reki verið gerður að því að sækja gögnin til Ríkisútvarpsins og kanna það hvort gögnin hafi verið afrituð með einhverjum hætti eða vistuð annars staðar eða vistuð á mörgum stöðum, hverjir það eru sem hafa aðgang að gögnunum á þessum tíma og fleira í þessum dúr?