staða rannsóknar á gagnaleka.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og tel raunar mikilvægt að við ræðum þetta mál hér í þessum sal. Ég skil spurninguna sem þríþætta. Í fyrsta lagi um viðbrögð í málinu en hv. þingmaður rakti að lögreglan á Suðurlandi fer með þann þátt málsins sem lýtur að rannsókn á sakamáli. Persónuvernd hefur tilkynnt um það opinberlega að hún er að rýna ákveðna þætti þessa máls og hefur rakið það hvaða angar málsins það eru. Það liggur jafnframt fyrir að sjálfstæð og óháð nefnd um eftirlit með störfum lögreglu er að gera það líka. Við þekkjum það auðvitað sem sitjum hér í þessum sal að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er jafnframt að skoða málið. Ég ritaði héraðssaksóknara, sem var jú auðvitað sérstakur saksóknari á sínum tíma, bréf með ákveðnum lykilspurningum varðandi vörslu gagna, varðandi aðgang, hvernig öryggi gagnanna var tryggt, hvað hefði breyst í meðförum síðan. Ég hef því miður ekki upplýsingar um það hvort eða hverjum hefur verið tilkynnt um ætlaðan öryggisbrest en ég geri ráð fyrir því að viðeigandi stofnanir hafi það gert. Ég hef sjálf ekki upplýsingar um það hversu margir voru þarna undir þannig að ég á ekki auðvelt með að svara því en get vitaskuld gengið eftir þeim upplýsingum. Ég vil árétta hér, eins og ég hef áður tekið fram, að ég lít þetta mál mjög alvarlegum augum og hef verið ánægð með það að sjá að þingið ætli að skoða þetta mál, hef sjálf kallað eftir gögnum frá héraðssaksóknara, eins og ég segi, og nokkrar opinberar stofnanir eru þá þegar með málið til meðferðar.