staða rannsóknar á gagnaleka.
Frú forseti. Mér finnst eðlilegt að viðkomandi sé tilkynnt um það, að það fólk sem er í þessum gögnum fái upplýsingar um þetta. Ég árétta hins vegar það sem ég nefndi í fyrra svari, að mér er ekki kunnugt um hvort það hafi verið gert eða ekki. Það er auðvitað mjög alvarlegt að viðkvæmar persónulegar upplýsingar hafi farið út úr vörslum opinberra aðila og mér finnst nú ýmislegt benda til þess, bara af umfjöllun fjölmiðla, að hér hafi verið um gagnaþjófnað að ræða. Mér finnst sá þáttur málsins skipta máli, að það fólk sem um ræðir fái upplýsingar um þetta. Mér finnst sá þáttur sömuleiðis mjög áhugaverður og mikilvægt að það sé kannað hverjir það voru sem sýndu gögnunum áhuga, því að ef við horfum á umfjöllun fjölmiðla þá leitar sú spurning auðvitað á mann: Hvað vissu þeir einstaklingar sem voru að leita eftir þessum gögnum? Voru þeir í góðri trú?