verk stjórnarandstöðunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að hæstv. forsætisráðherra kveinkar sér hér undan öflugri stjórnarandstöðu. Ég get tekið undir það, hún er miklu öflugri en á síðasta kjörtímabili, miklu öflugri, og verður það, hæstv. forsætisráðherra þekkir þetta kannski ekki nógu vel. Hún líkir þessu við stjórnarandstöðuna sem var hér á sínum tíma þegar Jóhönnustjórnin undir forystu Samfylkingarinnar var við stjórn 2009–2013. Ég get aftur tekið undir það, þá var öflug stjórnarandstaða, samhent öflug stjórnarandstaða eins og er núna í þinginu. Henni tókst að afstýra stórslysum í tíð þeirrar ríkisstjórnar með öflugri stjórnarandstöðu. Það er eiginlega of langur listi til að fara að telja það upp, virðulegur forseti, en það er þó alveg sérstaklega ástæða til að nefna að okkur tókst m.a. að leiðrétta kúrsinn á mjög óvönduðum og illa unnum tillögum sem sneru að breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þannig tókst að lágmarka (Forseti hringir.) það tjón sem varð af þeim fyrirætlunum þáverandi ríkisstjórnar undir forystu Samfylkingarinnar.