almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Meginmarkmið þess er annars vegar að bæta stöðu þeirra sem ung voru metin til örorku og eiga engin eða takmörkuð atvinnutengd réttindi til ellilífeyris og hins vegar að styrkja stöðu elli- og örorkulífeyrisþega með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun. Þá er lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að skipuð sé stjórn yfir Tryggingastofnun.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru öll aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Aldursviðbót 3. gr.: Með 3. gr. frumvarpsins er lagt til að aldursviðbót fylgi ellilífeyrisgreiðslum til þeirra sem uppfylltu skilyrði til töku örorkulífeyris eða hlutaörorkulífeyris áður en viðkomandi hófu töku ellilífeyris. Með því munu þau sem eiga engin eða takmörkuð atvinnutengd réttindi til ellilífeyris, vegna þess að þau voru ung metin til örorku, áfram njóta stuðnings.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að aldursviðbót samhliða ellilífeyri greiðist ekki þeim sem fyrst uppfylltu skilyrði um endurhæfingarmat eða samþætt sérfræðimat við 44 ára aldur eða síðar. Í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka komu fram ábendingar hvað þetta atriði varðar og segir þar m.a. að ýmsir hópar sem eiga rétt á aldursviðbót í núverandi kerfi ættu ekki rétt á aldursviðbót samhliða ellilífeyri verði frumvarpið að lögum.
Meiri hlutinn bendir á að eldra örorkumat verður lagt að jöfnu við samþætt sérfræðimat gagnvart þessum hópi og verður aldursviðbót greidd þeim örorkulífeyrisþegum og hlutaörorkulífeyrisþegum sem hafa haft verulega skert tækifæri til ávinnslu réttinda. Á það einkum við um þá einstaklinga sem fæðast fatlaðir eða missa snemma getu til virkni á vinnumarkaði. Full fjárhæð aldursviðbótar mun greiðast þeim sem voru 18–24 ára þegar annaðhvort skilyrði fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum voru fyrst uppfyllt eða þegar niðurstaða samþætts sérfræðimats lá fyrst fyrir um að geta til virkni á vinnumarkaði væri 50% eða minni. Fjárhæð aldursviðbótarinnar mun lækka um 5% fyrir hvert ár eftir það og greiðist aldursviðbót ekki hafi umsækjandi fyrst uppfyllt framangreind skilyrði við 44 ára aldur eða síðar.
Árleg ákvörðun um breytingu á greiðslum almannatrygginga taki mið af launavísitölu: Þá fjallaði nefndin um ákvæði 5. gr. frumvarpsins. Í lögum um almannatryggingar er mælt fyrir um að við árlega ákvörðun greiðslna almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Með 5. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað þess að árleg ákvörðun um breytingu á greiðslum almannatrygginga taki mið af launaþróun verði miðað við þróun launavísitölu Hagstofu Íslands. Við mat á því hvort hækkun greiðslna almannatrygginga hafi verið í samræmi við efnahagsþróun verði horft til mælinga á launavísitölu í stað mats á launaþróun. Við það mat sé miðað við upphafspunkt í júní 2024 þannig að leiðrétting miðist við mældar vísitölur launa og neysluverðs hjá Hagstofu Íslands til júnímánaðar yfirstandandi árs. Mun því uppsöfnuð hækkun greiðslna almannatrygginga aldrei verða minni en hækkun framangreindra vísitalna frá júní 2024. Með 7. gr. er lagt til að ákvæði 5. gr. frumvarpsins komi til framkvæmda við ákvörðun fjárhæða almannatrygginga fyrir árið 2026.
Í þeim umsögnum sem bárust komu fram athugasemdir við ákvæði 5. gr. frumvarpsins. Fram komu m.a. sjónarmið um að fyrirhugaðar breytingar gætu leitt til aukins verðbólguþrýstings og muni draga úr hvata á vinnumarkaði. Jafnframt að hætta sé á að bætur muni dragast aftur úr lágtekjuhópum verði frumvarpið að lögum. Þá komu fram sjónarmið um að hækkanir á greiðslum almannatrygginga hafi hingað til ekki verið bundnar við launavísitölu og varhugavert væri að tengja svo stóran hluta ríkisútgjalda við launavísitölu.
Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis til nefndarinnar er m.a. fjallað um að í lögum hafi ekki verið kveðið á um með nákvæmum hætti hvernig meta skuli launaþróun heldur hafi það verið ákvörðunaratriði hverju sinni við fjárlagagerð hvernig horfur um launaþróun væru metnar. Almennt hafi verið leitast við að útfæra viðmið um áætlaða meðalhækkun launataxta í kjarasamningsbundnum launabreytingum á almennum vinnumarkaði og þau viðmið falið í sér að tekið hafi verið mið af meðalbreytingum á vinnumarkaði í heild fremur en hækkunum hjá einstökum hópum. Við útreikning launabóta fjárlaga hafi því ekki tíðkast að taka mið af vísitölu launa, enda felst í launavísitölu m.a. launaskrið, t.d. vegna innbyggðra aldurshækkana eða framleiðni- og hagvaxtaraukningar.
Eitt meginmarkmið frumvarpsins er að styrkja stöðu elli- og örorkulífeyrisþega með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun. Þannig er dregið úr hættu á því að greiðslur almannatrygginga dragist aftur úr í samanburði við almenna þróun lífskjara og stuðlað að meiri efnahagslegum stöðugleika fyrir lífeyrisþega. Meiri hlutinn undirstrikar að þeirri breytingu sem lögð er til er ætlað að hafa í för með sér meiri fyrirsjáanleika og gagnsæi um forsendur hækkana greiðslna almannatrygginga en verið hefur. Auk þess bendir meiri hlutinn á að sá hópur sem hér er undir hefur ekki tækifæri til þess að semja um kaup og kjör líkt og gengur og gerist á almennum vinnumarkaði og standa rök til þess að láta hópinn fylgja launaþróun. Er frumvarpið að mati meiri hlutans skref í þá átt að stöðva kjaragliðnun sem verið hefur á milli launa og greiðslna almannatrygginga á undanförnum árum með það að markmiði að örorku- og ellilífeyrisþegar hljóti sömu kjarabætur og aðrir þjóðfélagshópar.
Varðandi kostnað: Nefndin fjallaði um þann kostnað sem kann að falla á ríkissjóð verði frumvarpið að lögum. Í greinargerð með frumvarpinu segir að sú breyting sem lögð er til með 5. gr. frumvarpsins kunni að fela í sér hækkun þess hluta fjárlaga sem hækkar sjálfvirkt óháð stöðu ríkissjóðs. Hingað til hafi kaupmáttur greiðslna almannatrygginga og úr lífeyrissjóðum verið tryggður með tengingu við vísitölu neysluverðs en með frumvarpinu sé lagt til að þeim forsendum verði breytt, eins og áður hefur verið rakið. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu og minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis að útgjaldaaukning ríkissjóðs gæti orðið allt að 3–4 milljarðar kr. á ári. Þá megi gera ráð fyrir því að kostnaður vegna tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu nemi uppsafnað um 10–11 milljörðum kr. undir lok tímabils fjármálaáætlunar. Þá kemur fram að miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2025 hefði kostnaðurinn orðið 3–4 milljörðum kr. hærri á árinu 2025 hefðu bæturnar fylgt þróun launavísitölu. Auk þess segir að áhætta sé til staðar að þróun launavísitölu verði umfram það sem nú er spáð og muni kostnaður aukast til samræmis verði það raunin. Gert er ráð fyrir þeim viðbótarkostnaði sem kann að falla á ríkissjóð, verði frumvarpið að lögum, í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030.
Þá er vikið nokkrum orðum að stjórn Tryggingastofnunar: Með frumvarpinu er lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að skipuð sé stjórn yfir Tryggingastofnun. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þyki almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Telur meiri hlutinn að með því að fella brott ákvæði um stjórn Tryggingastofnunar megi ná fram hagræðingu í ríkisrekstri án þess að það komi niður á opinberri þjónustu.
Undir kaflanum Breytingartillögur í nefndarálitinu segir að meiri hluti velferðarnefndar leggi til breytingar á frumvarpinu. Annars vegar er lögð til lagatæknileg breytingin á 3. gr. Hins vegar eru lagðar til breytingar á 6. gr. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Tryggingastofnun setji nánari reglur um vinnslu persónuupplýsinga vegna skrár skv. 3. gr.
Meiri hlutinn leggur til að kveðið verði á um að ráðherra setji í reglugerð nánari reglur um sama efni í stað heimildar Tryggingastofnunar til að setja reglur.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir þetta álit skrifar meiri hlutinn í velferðarnefnd sem í eru, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Jón Gnarr, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Vilborg Kristín Oddsdóttir og Jónína Björk Óskarsdóttir.
Ég hef smátíma og mig langar bara að segja að við höfum rætt þetta ítarlega og við gerum okkur alveg grein fyrir að hér er um umdeilt mál að ræða og kostnaðarsamt. Þetta mun kosta. En það sem er í rauninni að eiga sér stað er að hér er verið að taka á kjaragliðnun sem myndast hefur og komið verst niður á þeim sem síst skyldi. Lengi vel hefur — alla vega get ég talað fyrir minn flokk — skipt gríðarlegu máli að geta náð þessu fram og jafnað kjör þessa hóps við aðra. Það er eitt af grunnmálum ríkisstjórnarflokkanna að taka þetta skref. Það er alveg rétt að hér mun mögulega hljótast heilmikill kostnaður af og eftir því sem ég veit best er búið að taka frá þetta fjármagn. Það er því ekki eins og ríkisstjórnin viti ekki að þetta muni hafa í för með sér útgjöld. En þetta er bara talið vera sanngirnismál og löngu tímabært. Síðan er auðvitað hægt að koma með ýmsa útreikninga og alls konar prósentur og við í meiri hlutanum höfum alla vega hlustað á þetta allt. Engu að síður er þessi ríkisstjórn og flokkarnir sem að ríkisstjórninni standa mjög svo sátt við að taka þetta skref. Ég hlakka til að heyra samt sem áður góða umræðu um málið. — Takk.