almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Þetta er eitt stærsta málið, ef ekki það stærsta, sem hefur verið tekist á um í velferðarnefnd í vetur. Stórt og mikið mál. Ég tek undir efasemdir hv. þm. Ingibjargar Isaksen sem snýr að því að það sé verið að fylla í kjaragliðnunina. Ég ætla svo sem ekki að taka það fyrir núna heldur aðeins að byrja á mati á áhrifum. Hv. þingmaður og framsögumaður málsins, formaður velferðarnefndar, kemur inn á, sem ég hef gert töluvert af hér í þingsal, þ.e. mat á áhrifum frumvarpsins. Málið er að í mati á áhrifum frumvarpsins, sem kemur úr ráðuneytinu, segir:
„Verði frumvarpið að lögum mun það hafa jákvæð fjárhagsleg áhrif á þau sem fá greiddan örorkulífeyri eða ellilífeyri úr almannatryggingum.“
Svo ekki neitt meir. Það er ekkert um mat á áhrifum fyrir ríkissjóð sem er nú yfirleitt það sem við erum mikið að velta fyrir okkur þegar við erum í lagafrumvörpum, mat á áhrifum. Þá er þetta yfirleitt eitt helsta atriðið sem er tekið fyrir, þ.e. áhrif á ríkissjóð. Það er ekki fyrr en í minnisblaði, sem kemur að ósk minni hluta um að fá frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu minnisblað með töluvert ítarlegum spurningum. Það minnisblað liggur fyrir, og ég tek það kannski betur fyrir í ræðu á eftir, og snýr að þessum 3–4 milljörðum á næsta ári og síðan á tíma fjármálaáætlunar upp á 10–11 milljarða. Það er svona punkturinn kannski, að fá viðbrögð hv. þingmanns og framsögumanns málsins á þessu atriði með mat á áhrifum og hvað þetta kemur seint fram í þessari umræðu með minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu upp á einhverjar sex síður.
Síðan aftur kemur líka á óvart: Af hverju hafnaði meiri hluti nefndarinnar umsögn sem minni hlutinn óskaði eftir frá hv. fjárlaganefnd sem er lykilnefnd í þinginu og fer með þennan málaflokk, (Forseti hringir.) fjárlög ríkisins, þar sem þetta er kannski um 20% af fjárlögum ríkisins, bara þetta einstaka mál sem að snýr að því. Það er einkennilegt.