almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Ég vil bara ítreka enn og aftur að hér er verið að stöðva kjaragliðnun sem hefur verið viðvarandi frá efnahagshruni. Eins og kom fram í álitinu og í ræðu hér áðan þá er búið að reikna út hvað þetta kostar. Við erum að tala um það sem ég las hér áðan, að það megi gera ráð fyrir því að kostnaður vegna tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu nemi uppsafnað um 10–11 milljörðum kr.
Það er alveg rétt að þetta minnisblað frá ráðuneytinu tók alveg snúning á þessum útreikningum og sýndi einmitt fram á kostnað og líka ófyrirsjáanleika með þessu máli. En það hefur líka verið sagt, og líka af hæstv. efnahagsráðherra, að ríkisstjórnin er tilbúin til að fara í þessa vegferð með ákveðinn ófyrirsjáanleika til þess að eiga kost á að jafna þetta út og stöðva þessa kjaragliðnun. Það er það sem þetta gengur út á.
En varðandi þessa synjun: Ég get því miður ekki svarað henni, ég held að ég hafi ekki setið þann fund þar sem það var gert, en þá mun varaformaður nefndarinnar svara fyrir það. Fjöldi gesta hefur komið fyrir nefndina, það var búið að ræða þetta mikið, við vorum búin að fá minnisblöð, m.a. frá ráðuneytinu, þar sem við vorum búin að sjá báðar hliðar allan hringinn. Hér er um hápólitískt mál að ræða þar sem á að taka utan um þennan hóp og gera betur og þetta er bara spurning um réttlæti. Ég hef eiginlega ekki mikið meira að segja í mínu svari.