156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef heyrt hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson tala mjög oft og ítarlega um þetta. Mér finnst mikilvægt, eins og ég segi, að hlusta á öll sjónarmið. Við höfum fengið ýmsa útreikninga og töflur og prósentur og það hefur sannarlega ýmislegt verið rætt í þessu máli. En hér erum við samankomin í þessari ríkisstjórn og erum tilbúin til þess að taka þennan sérstaka hóp sem um ræðir, örorkulífeyrisþega, og gera við þá — sem er hreinlega löngu tímabært. Það er ekki hægt að neita því að sá hópur sem hér um ræðir hefur orðið eftir; hefur ekki fengið sömu kjarabætur og aðrir. Þeim hefur ekki einu sinni verið boðið til slíks borðs. Útreikningar á þeirra bótum hefur verið allt annars eðlis og fylgt, eins og fram hefur komið, almennri launaþróun á meðan laun annarra hafa fylgt vísitölu. (Forseti hringir.) Nú er verið að breyta þessu og af hverju ætti þessi hópur sífellt að vera skilinn eftir út undan?