156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[16:56]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til umtalsverðar breytingar á því kerfi sem hefur verið við lýði í nokkuð langan tíma. Við Sjálfstæðismenn höfum varað við þeirri leið sem hér er lögð til, hún geti skapað neikvæða hvata á vinnumarkaði og við höfum áhyggjur af því. Ég vil spyrja hv. þingmann og formann hv. velferðarnefndar hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að þarna verði hækkanir bóta almannatrygginga umfram lægstu laun sem hér eru í landinu og hvort formaðurinn hafi ekki áhyggjur af því að það fyrirkomulag geti ekki staðist. Það stefni í óefni, það verði algjörlega ómögulegt að standa undir velferðarkerfi ef hvatinn í kerfinu verður með þeim hætti að bætur almannatrygginga séu jafnvel orðnar hærri en lægstu laun í landinu. Hvernig ætlum við að halda uppi velferðarkerfinu ef hvati til atvinnuþátttöku er tekinn út úr kerfinu?