156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:00]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér þykir leitt að heyra að fulltrúar meiri hlutans skuli ekki hafa áhyggjur af því hvernig við byggjum upp velferðarkerfi í þessu landi og sýni takmarkaðan skilning á því hverjir eigi að standa undir velferðarkerfinu. Það er hið vinnandi fólk í landinu og það má aldrei verða þannig að það sé ekki hvati, við viljum og við höfum verið að vinna mjög þétt að því á síðustu árum á Alþingi að það sé hvati í kerfinu, í almannatryggingakerfinu, þannig að fólk geti farið aftur út á vinnumarkaðinn. En ég vil fá að minna hv. formann nefndarinnar á minnisblað fjármálaráðuneytisins þar sem er varað verulega við þessari leið sem hér er verið að fara, að þetta geti leitt til sjálfvirkra útgjalda óháð stöðu ríkisfjármálanna. Og hvað vill nú formaður nefndar segja um að þetta stangast á við sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma og er algerlega andstætt (Forseti hringir.) stefnu fjármálaáætlunar og laga um opinber fjármál? Ég held að meiri hlutinn geti ekki hunsað (Forseti hringir.) þessar athugasemdir fjármálaráðuneytisins ef hann tekur þetta af fullri ábyrgð.