156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir hennar seinna andsvar. Já, þetta með sjálfbærnina er gott dæmi vegna þess að ég hef vissulega og við í meiri hlutanum lesið vel minnisblað frá ráðuneytinu og allt sem verið er að tala um hér. En það eru líka aðrir sem hafa staðfest það og sýnt fram á að þetta muni einmitt ekki ógna sjálfbærni ríkissjóðs, alls ekki. Þannig að svona hefur þetta verið. Það eru þessi skilaboð frá hægrinu og önnur frá vinstrinu. En þetta er sú ákvörðun sem þessi ríkisstjórn ætlar að taka og ég vil bara minna á að sá hópur sem hér um ræðir var kannski einmitt vinnandi fólk. Þetta eru öryrkjar í dag sem langar til að vinna eins mikið og þau mögulega geta en vegna skerðinga hefur það ekki gengið upp og skerðingar eru náttúrlega ekki til komnar frá þessari ríkisstjórn heldur þeirri síðustu og þar áður. Hér er fólk sem hefur einhverra hluta vegna misst sína getu og færni að einhverju leyti, að fullu leyti sumir og að hluta til aðrir, en kannski hver fyrir sig hefur lagt sitt til samfélagsins, mismikið kannski og sumir bara mjög mikið. Ég vil líka minna á að það getur komið fyrir alla, mig og aðra hér og annars staðar að missa færni og getu, lenda í slysi, veikjast og verða öryrkjar. Ef okkar ríka góða land ræður ekki við þetta, sérstaklega þegar það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar og búið að taka frá fjármagn, þá veit ég eiginlega ekki hvað við getum gert og ekki gert. (Forseti hringir.) Það hefði verið skemmtilegra hefði náðst betri samstaða um þetta mál en það var augsýnilega í byrjun ekki svo (Forseti hringir.) og við verðum bara dálítið að ákveða að vera ósammála í þessu máli vegna þess.