almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Sá sem hér stendur og við erum að ræða um áhrif á ríkissjóð. Það er það sem ég fjallaði um. (Gripið fram í.) Ég er búinn að benda á það sem er búið að koma fram m.a. í gögnum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hef bent á að þetta hefur hækkað um 18% umfram launavísitöluna yfir þetta tímabil samkvæmt gögnum sem eru til um það hvernig málið hefur þróast. Umræðan sem sá sem hér stendur er kannski að koma inn á og hv. þm. Ingibjörg Isaksen áðan í sinni ræðu — við erum bara að benda á að þetta sé ekki rétta leiðin í akkúrat þessu máli, að ná þeim árangri í málinu sem ég reikna með að hér sé aðalatriðið, þessi kjaragliðnun milli bótanna og lægstu launa. Það sem við erum búin að benda á í löngu máli, tiltölulega löngu meira að segja á minn mælikvarða, er að það næst ekki fram með þessu þessari nálgun. Hún er ekki tryggð með þessu. Það er það sem er. En það er einhvern veginn þannig að maður getur ekki rætt ríkisfjármálin — ég sat það lengi í fjárlaganefnd, það verður einhver að vera vinur ríkissjóðs hér á þingi og þeir hafa verið ekkert allt of margir. Það hafa nefnilega ekki verið allt of margir vinir ríkissjóðs á þingi. En þegar þú situr í fjárlaganefnd í kannski sex, sjö ár þá náttúrlega ferðu að hugsa aðeins um þessa heildarmynd og að hafa efni á hlutunum. Einfaldi hluturinn er að það verður einhver að tala um þetta og það sem ég er að benda á er að við erum að fjalla hér um stórt og mikilvægt mál. Það verður að benda á í umfjöllun málsins (Forseti hringir.) áhrif á ríkissjóð og hvernig við nálgumst lög um opinber fjármál, ábendingar fjármálaráðs og fleiri aðila um þetta mál og þá gagnrýni sem kemur fram þar.