almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Með þessu erum við að reyna að stöðva kjaragliðnunina. Ég get alveg fullyrt það að kjaragliðnunin er búin að vera rosaleg undanfarna áratugi. Hvernig get ég fullyrt það? Jú, á þann einfalda hátt að ég lifði í þessu kerfi þannig að það fór ekkert á milli mála, ég veit nákvæmlega hvernig þetta kerfi virkaði og hverju það var að skila og hverju það var ekki að skila og hvernig það gat verið að skerða á milli flokka. Þetta er mannvonskukerfi sem því miður hefur verið byggt upp á löngum tíma. En við erum að reyna núna að stoppa kjaragliðnun. Og þá er það alveg ómögulegt. Ég spyr mig líka að því: Hvernig er hægt að reikna út að verðlagshækkun til einkarekinna fjölmiðla eða RÚV þurfi að vera 10 komma eitthvað prósent en á sama tíma, þetta var fyrir tveimur árum síðan, átti sama verðlagshækkun að vera 6 komma eitthvað prósent (Forseti hringir.) fyrir eldri borgara og öryrkja? Þarna munaði 3–4% á nákvæmlega sama hlutnum og vegna þess að þeir bjuggu til einhverja körfu til þess að ná niður hækkun til öryrkja og eldri borgara þá tókst þeim að gera þetta.