156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:40]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans innlegg í umræðuna. Það er nú einu sinni þannig í pólitík að við erum ósammála og það er þróttur lýðræðisins að hver hafi sína skoðun. Mér hefur sýnst á undanliðnum áratugum að við höfum byggt upp samfélag þar sem fólk er fyrir; þar sem við gerum ekki ráð endilega fyrir öllum, gerum ráð fyrir öðrum enn frekar. Skilaboðin úti í samfélaginu eru einatt þau að fatlað fólk er ódýrt. Öryrkjar, það er á mörkunum að samfélagið hafi efni á þeim. Þetta eru skilaboð sem dynja á þessu fólki ævilangt. Kemst það í skóla í haust? Sennilega en þó líklega ekki þegar upp er staðið. Hefur það efni á að halda heimili? Heimili? Það fær ekki einu sinni heimili. Þetta eru skilaboðin sem dynja á þessum hópi fólks árum og áratugum saman og það er undarlegt að flokkar hér á þingi vilji áfram standa fyrir þessu bergmáli, að við höfum einfaldlega ekki efni á að koma til móts við það fólk sem ber minnst úr býtum í þessu samfélagi. Við höfum ekki efni á því. Ríkissjóður leggst jafnvel bara á hliðina við það að koma til móts við þetta ágæta fólk sem í mörgum tilvikum, í mjög mörgum tilvikum, getur ekki unnið vegna fötlunar, vegna sjúkdóma, vegna langvarandi ástands sem getur ekki skilað því út á vinnumarkaðinn. Ég spyr því hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson: Vill hann að þessi kjaragliðnun haldi áfram? Er það hans ósk til að bjarga ríkissjóði?