156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:45]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er bara allt í lagi að tilfinningar spili inn í þessa umræðu. Það er bara allt í lagi. Það eru tilfinningar þarna úti hjá þeim sem eru að glíma við vandræði sín á hverjum einasta degi. Samfélagið er fullt af tilfinningum, það er bara eðlilegt og sjálfsagt mál. Sá sem hér stendur hefur líka setið árum saman í fjárlaganefnd og þekkir fjárlagaliði sem þetta samfélag eyðir í. Margt af því er óþarfi. Margt af því hefur ekkert með ríkisstuðning að gera. Við getum auðveldlega tekið okkur á í öguðum fjármálum og komið þeim peningum sem eru í sameiginlegum sjóðum okkar til þeirra sem þurfa á því að halda. Í því efni nefni ég að við ætlum áfram samkvæmt hægri flokkunum, samkvæmt íhaldinu hér á þinginu, að veita ríkasta fólkinu mestan afslátt í þessu samfélagi. Áfram skal vera afsláttur á veiðigjöldum í þessu landi, ríkasta prósentinu til heilla, en það má ekki leiðrétta hlut fatlaðs fólks. Það má ekki. Það er of íþyngjandi. Það er óábyrgt.