156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:50]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki alveg að átta mig á allri þessari umræðu en kannski erum við að nálgast eitthvað hér. Það sem fjármálaráð og fjármála- og efnahagsráðuneyti landsins eru að benda á er að það má ekki setja hluta á sjálfstýringu. Það er það sem sá sem hér stendur er búinn að segja æðioft í dag. Þetta er það sem þetta snýst um. Hér er verið að setja á sjálfstýringu fimmtung fjárlaganna. Einstakir þættir í fjárlögum eru ekki á vísitölu. Ríkið gerir ekki þjónustusamninga til fimm ára við aðila með vísitölu. Vísitala tryggir ekki hluti. Það er slæmt fordæmi. Það er það sem fjármálaráð er að segja í sinni umsögn við fjármálaáætlun. Það er það sem fjármála- og efnahagsráðuneytið er að segja. Það er ekki gott, það er óheilbrigt fyrir ríkissjóð, fyrir fjármálastjórnina í landinu að setja hluti á sjálfstýringu með vísitölu. Það er það sem við erum að fjalla um.

Þetta hljómar eins og einhver popúlismi: Eigum við að nota þá sem eru á ellilífeyri eða örorku til að sveiflujafna í íslensku efnahagslífi? Hvers konar þvæla er þetta? Þetta er nú hálfgerð móðgun. Þetta er bara furðulegt. Þessi nálgun er alveg stóreinkennileg, satt að segja. Það sem er aðalatriðið hér, og þá í 15. skiptið í dag, er að við setjum ríkissjóð ekki á sjálfstýringu í gegnum vísitölur. Það er lykilatriði í þessu máli. Þessi umræða er ekki flóknari en það. Það er það sem ég er í raun að benda á. Þá skal ég vera einn af fáum vinum ríkissjóðs í dag, að reyna að halda (Forseti hringir.) — við viljum bara öguð, góð fjármál ríkisins sem byggjast á lögum um opinber fjármál (Forseti hringir.) sem voru samþykkt hér í þingsal í lok desember 2015.