almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég skil og er sammála varðandi rekstur ríkissjóðs. Það þarf að fara vel með. Við þurfum að gera þetta af skynsemi og reka sjóðinn af skynsemi, til hagsbóta fyrir samfélagið. Við erum að sjálfsögðu norrænt velferðarsamfélag þar sem við viljum jafnframt standa vörð um okkar fólk og sérstaklega það fólk sem er í verstu stöðunni. Þetta frumvarp eru hins vegar ekki komið til að kollvarpa hlutum. Það tekur á kjaragliðnun og stöðvar hana.
Varðandi sjálfvirkar tengingar: Nú er það þannig í lögunum í dag að það er sjálfvirk tenging varðandi verðlag. Ef vísitala neysluverðs hækkar úr hófi þá kemur það inn. Vísitölutengingar taka auðvitað á öðrum þáttum, skuldum og öðru slíku.
Tíminn flaug náttúrlega þannig að maður datt út úr þessu en ég held að það sé mikilvægt að reyna að komast til botns í þessu og standa vörð um þennan hóp.