156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[17:54]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er bara sammála, auðvitað stöndum við með þessum hópum. Auðvitað gerum við það, enda er ekki verið að tala um neitt annað. Auðvitað erum við að verja þetta norræna velferðarsamfélag sem Ísland er í dag. Við skorum hæst í lífskjörum í dag samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Við erum á topp fimm á flestum listum, hvert sem litið er þannig að ég ætla kannski ekki að eyða sekúndunum í það. Það er rétt að vísitala neysluverðs hefur verið inni í þessu frá 1997. Ekki myndum við vilja hafa hana sem viðmiðun. Ef við værum með hana sem viðmiðun þá væri þetta svona 218.000. Eða hvað er talan? Hún kemur í einhverjum gögnunum sem við erum með í minnisblaðinu, eitthvað rúmlega 200.000. Við höfum bara farið langt umfram það og síðan höfum við ekki verið með launavísitöluna vegna þess að við höfum farið umfram launavísitöluna. Við höfum verið með kerfi (Forseti hringir.) sem byggist á launaþróun og raunverulega er verið að segja það í minnisblaðinu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu að við höfum farið í raun alveg 18% umfram launavísitölu (Forseti hringir.) frá 1997. Þannig að það er verið að gera betur heldur en þær vísitölur. Það er það sem við erum m.a. að vara við hér til lengri tíma, að fylgja henni ekki.