almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða nefndarálit hv. þm. Sigríðar Á. Andersen og mig langaði bara að spyrja hana hvort hún sé sammála því sem segir í nefndarálitinu. Hún vitnar t.d. í Samtök atvinnulífsins þar sem segir að bætur almannatrygginga eigi að tryggja framfærslu. Telur hún að það sé rétt að bætur almannatrygginga tryggi framfærslu allra? Síðan segir, um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu, að sú þróun stuðli að enn meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi. Er hún þá að meina að ef við gerðum þetta ekki væri verið að nota eldri borgara og öryrkja til að hafa minni verðbólgu og lægra vaxtastig? Ég spyr hvort hún trúi þessu sem Samtök atvinnulífsins segja. Viðskiptaráð er á svipaðri braut en þar er komið inn á að það að miða við launavísitölu veiki hvata til þátttöku á vinnumarkaði, trúir hún því? Við erum ekkert að auka þetta svo rosalega mikið frá því sem nú er og upp í launavísitöluna, það er bara bil þarna á milli sem við þurfum að brúa. Ég spyr hvort það geti bara, þetta litla bil, valdið því að enginn hvati verði fyrir þetta fólk til að vinna; við erum þarna t.d. að tala um mikið veikt fólk. Síðan langar mig að spyrja hana út í það að forgangsraða. Það sem kemur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, ég bara næ því ekki, að það geti dregið úr möguleikum stjórnvalda til að forgangsraða fjármunum til annarra verkefna. Ég bara næ ekki svona orðalagi, að kjarabætur eldri borgara og öryrkja (Forseti hringir.) geti valdið því að ríkissjóður geti ekki fjárfest í einhverju öðru. Þetta eru bara mannréttindi, ég spyr hvort hún sé ekki sammála því. Ég spyr hvort hún sé ekki sammála því að þetta sé mjög skrýtið.