almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Það eru allir sammála um að bætur almannatrygginga eiga að tryggja framfærslu. Það gera bætur almannatrygginga, þær tryggja framfærslu. Menn geta haft á því skoðun hversu mikla framfærslu, hversu mikið eigi að vera í því. En það er verið að tryggja framfærslu. Bætur almannatrygginga eru ekki laun, þær eru bætur og þær eiga að tryggja framfærslu. Laun tryggja framfærslu og ýmislegt annað líka. En það er ekki hægt að líkja saman bótum úr almannatryggingakerfinu og launum á vinnumarkaði. Það er ólíku saman að jafna. Eðli þeirra er allt annað. Auðvitað vilja allir að menn geti lifað sómasamlegu lífi af bótum, þeir sem þurfa á því að halda. Það er hvorki hægt að bera saman ellilífeyrisþega né öryrkja, það er tvennt ólíkt. En það er líka sitthvað öryrki og öryrki. Það þarf líka að skoða þetta í því sambandi, menn geta verið 50% öryrkjar eða 70% eða 100%, það er ekki hægt að fjalla um þetta eins og þetta sé einsleitur hópur. Það er það alls ekki. Hér segir að það verði að hafa í huga að sú þróun sem hefur verið hafi stuðlað að meiri verðbólgu þar sem þróun launavísitölu hefur verið töluvert umfram almennar kjarasamningsbundnar launahækkanir, að sú þróun hafi stuðlað að meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi. Þetta eru bara alþekkt sannindi sem við þekkjum svo ofboðslega vel hér á Íslandi, það er þessi víxlverkun launahækkana og verðlags. Og það sem skapar verðbólguna hér, það eru auðvitað ríkisútgjöldin. Það eru ríkisútgjöld sem búa til verðbólgu.