156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:17]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir svarið. Þeir sem þurfa á því að halda, sagði hv. þingmaður. Hv. þingmaður benti síðan á í fyrri ræðu sinni, eða þegar hún var að lesa álitið og tók fyrir aldurstengdu uppbótina — hefur hún lesið hverjir eiga að fá aldurstengdu uppbótina og hvers vegna, hvaða öryrkjar það eru sem eiga að fá þessa aldurstengdu uppbót? Þetta er verst setta fólkið í örorkukerfinu. Þetta er yfirleitt fólk sem er búið að vera öryrkjar frá barnsaldri, hefur enga möguleika á að vera á vinnumarkaði. Það sem er merkilegast við það er að þessu fólki er refsað fyrir það að verða 67 ára, að ná því að verða 67 ára, og fara á eftirlaun. Þá missa þau töluverðar tekjur. Ég spyr bara: Finnst henni það virkilega sanngjarnt? Og svo gleymist það alltaf í þessari umræðu, sem þarf líka að fara að taka á — segjum að nú myndum við bara strax fara að hækka lífeyri almannatrygginga eins og launavísitalan er. Á sama tíma erum við síðan að hækka lífeyrissjóðsgreiðslurnar. Þá kemur alltaf skerðing, við erum með þetta skerðingarkerfi. Þess vegna er það svolítið sorglegt að við séum alltaf að tala um bætur þessa fólks í dag en síðan kemur skerðingardagurinn og þá er verið að skerða fólk afturvirkt og þetta er aldrei tekið inn í launaþróunina. Ég hef margoft farið yfir það hérna í samtali við fyrrverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson, á sínum tíma að allar þær skerðingar sem koma á þennan hóp ári seinna eru aldrei teknar inn í launaþróunina. Finnst henni það sanngjarnt að aldrei sé tekið tillit til þess?

(Forseti (GrímG): Forseti vill minna hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að ávarpa þingforseta og vísa hver til annars sem háttvirts þingmanns eða hæstvirts ráðherra.)