almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Hér erum við að taka til umræðu frumvarp sem lýtur að mikilvægri endurskoðun á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga. Markmiðið er að bæta kjör örorkulífeyrisþega og síðar ellilífeyrisþega, sem er afar mikilvægt og brýnt í ljósi stöðunnar í dag, og einmitt líka að hafa sanngirni að leiðarljósi og ná stöðugleika fram til lengri tíma. Frumvarpið byggir á þremur meginþáttum, ef má taka þannig til orða, misviðamiklum. Númer eitt er að viðhalda aldursviðbót við flutning á ellilífeyri, síðan er það að tengja árlega hækkun lífeyris við launavísitölu og að lokum að efla tölfræðigrunn og gagnaöflun um þjónustu og árangur.
Varðandi aldursviðbótina sem ég ætla að byrja mína ræðu á, sem er mikilvægt réttlætismál, þá er það í rauninni kannski einna brýnasta breytingin, þ.e. að tryggja áframhaldandi greiðslu aldursviðbótar en eins og málum er háttað nú þá fellur þessi viðbót niður þegar einstaklingur færist af örorku á ellilífeyri. Hagsmunasamtök hafa verið að vekja athygli á þessu á undanförnum árum en þetta hefur valdið tekjuskerðingu hjá einstaklingum sem hafa vegna fötlunar eða veikinda ekki haft tækifæri til að afla sér atvinnutengdra lífeyrisréttinda. Með þessu frumvarpi er þetta leiðrétt sem er bara mikilvægt réttlætismál vegna þess að þeir sem verða fyrir því að verða öryrkjar snemma á lífsleiðinni og búa við takmarkað starfsgetumat eiga ekki að missa afkomuöryggi við það eitt að ná tilteknum aldri. Þar af leiðandi er þessi breyting mikilvæg og við í Framsókn styðjum hana heils hugar.
Síðan er það tengingin við launavísitöluna, hvernig greiðslur skulu hækka árlega. Nú liggur ákvörðun um hækkanir hjá Alþingi og tekur mið af fjárlögum hverju sinni og frumvarpið leggur til að greiðslurnar verði bundnar við launavísitölu Hagstofunnar. Auðvitað er ánægjulegt að hækkanirnar verði með einhverri formfestu, að greiðslur hækki ekki minna en verðlag og tenging verði við efnahagsþróun í landinu, en, virðulegi forseti, það er líka mikilvægt að við spyrjum okkur að því hvaða áhrif þessi tenging hefur. Hvaða áhrif hefur hún á fólkið sem tengist henni? Hvaða áhrif hefur það, eins og hefur verið bent á í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu, að launavísitalan tekur mið af meðaltekjum? Meðaltekjur eru ekki það sama og lágmarkstekjur og það eru ekki meðaltekjur sem fólk lifir á þegar það hefur aðeins lífeyri frá TR. Hér hefur verið fullyrt einmitt að verið sé að stöðva kjaragliðnun með þessu máli. En hagsmunaaðilar í tengslum við þetta mál hafa varað við veikri tengingu. Við þurfum auðvitað ekki að leita langt yfir skammt til að sjá staðfestingu þess efnis en Landssamband eldri borgara segir skýrt í sinni umsögn að grunnlífeyrir frá TR sé í dag yfir 100.000 kr. lægri en lægsti taxti hjá Starfsgreinasambandinu. Sambandið telur slíkt óásættanlegt og vilja beina tengingu við lægstu laun. ASÍ segir að launavísitalan dugi ekki og endurspegli ekki þróun þeirra launa sem lægst eru og Öryrkjabandalag Íslands kallar eftir tryggingu fyrir lágmarksframfærslu og gagnrýnir að meðallaun séu notuð sem viðmið fyrir lágtekjufólk. Þetta er auðvitað reynslumikið fólk sem sendir inn þessar umsagnir og mikilvægt að við höfum þær að leiðarljósi í tengslum við þetta mál.
Í ljósi þessa þá lögðum við í Framsókn fram breytingartillögu við frumvarpið, sem er á þskj. 722, sem gengur út á það að í stað þess að tengja greiðslur við launavísitölu erum við að leggja til að greiðslur verði aldrei lægri en því sem nemur 85% af lægsta kauptaxta samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, að viðmiðið verði í rauninni bundið við lágmarksframfærslu í samfélaginu. Þetta er ekkert flókið. Þetta er einfalt, skýrt og segir einfaldlega að enginn lífeyrisþegi á að þurfa að búa við lægri greiðslur en 85% af lægsta launataxta. Slíkt viðmið tryggir að greiðslur almannatrygginga haldist í takti við lífskjör þeirra sem hafa minnst og veitir í rauninni raunverulegt öryggi og það stöðvar kjaragliðnunina sem við höfum einmitt séð breikka ár frá ári.
Virðulegi forseti. Mig langar til að lesa hér upp greinargerðina sem fylgir breytingartillögu minni:
„Hér er lögð til breyting á 62. gr. laga um almannatryggingar þannig að greiðslur nemi minnst 85% af lægsta launataxta fyrir 18 ára og eldri samkvæmt kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands. Greiðslur yrðu því samræmdar árlegri þróun lágmarkslauna á vinnumarkaði. Vísað er til Starfsgreinasambandsins vegna umfangsmikillar aðildar sambandsins að gerð kjarasamninga sem tryggir sérfræðiþekkingu og stöðugleika við ákvarðanir. Útgjöld vegna tekjutryggingar skulu tilgreind í fjárlagafrumvarpi ár hvert til að auka gagnsæi og tryggja lífeyrisþegum greiðslur í takt við almenna launaþróun.“
Virðulegi forseti. Ég tel að þessi breytingartillaga styrki frumvarpið og tryggi enn betur þann kjarabótaásetning sem býr því að baki. Með samþykkt tillögunnar væri tryggt að upphæð lífeyris væri í takti við launaþróun. En mig langar að fara aðeins yfir í stuttu máli þessa breytingartillögu til þess að einfalda þetta kannski. Þessi breytingartillaga tengir lífeyri við lægstu laun, ekki meðalvísitölu. Þetta stöðvar líka þessa kerfisbundnu kjaragliðnun með lagalegu lágmarki, að með því að miða greiðslur við 85% af lægsta taxta þá dregst lífeyrir aldraðra aldrei aftur úr, sama hver þróun launavísitölu eða verðbólgu er. Þetta byggir á kröfum hagsmunaaðila sem sent hafa inn umsagnir í tengslum við þetta mál og er í rauninni bara bein viðbrögð við þessum umsögnum. Þetta lágmarksviðmið er augljóst og það er mælanlegt líka. Það er hægt að hafa fyrirsjáanleika með þessari breytingartillögu og tengir greiðslur við lágmarksframfærslu.
Virðulegi forseti. Það er líka þriðja atriðið sem þetta mál sem hér er til umræðu fjallar um, sem er tölfræðiupplýsingar og gagnaöflun og er kannski svolítið í takt við mælaborð barna. Þetta var rætt mikið og unnið að á síðasta kjörtímabili, kallað fram mælaborð til að sjá hver staðan er og sjá hvernig best er að forgangsraða fjármunum ríkisins þannig að þeir nýtist sem best og skili sem bestum árangri. En hér er verið að leggja til að Tryggingastofnun ríkisins verði falið skýrt lögbundið hlutverk við að halda úti miðlægri skráningu upplýsinga og framvindu endurhæfingar og þjónustu við einstaklinga á landsvísu. Markmiðið er einmitt að fylgjast betur með gæðum og árangri endurhæfingarúrræða og tryggja samfellu í þjónustu við notendur, sem er afar mikilvægt. Með því að safna þessum tölfræðilegu upplýsingum má sjá hvar úrbóta er þörf í kerfinu og hvort einstaklingur fái viðeigandi þjónustu á réttum stað á réttum tíma. Tilgangurinn er því tvíþættur, annars vegar að enginn falli úr kerfinu eða bíði óeðlilega lengi eftir úrræðum sem hann á rétt á og hins vegar að stjórnvöld hafi áreiðanleg gögn til að meta árangur og skipuleggja þjónustu á grundvelli staðreynda. Það er því afar mikilvægt að taka þetta upp til þess einmitt að þetta nýtist betur í stefnumótun í þessum málaflokki og eins líka varðandi forgangsröðun fjármuna og verkefna.
Þetta mál sem hér er til umfjöllunar er afar brýnt og það er mikilvægt. Ég tel að það sé einnig alveg ferðarinnar virði að skoða þær umsagnir sem komu í tengslum við málið, þær viðvaranir sem voru hafðar uppi af umsagnaraðilum, af fjármálaráðuneytinu og hvort það sé hreinlega þess virði að endurskoða þetta mál, leggja það fram betur unnið og betur greint í haust en vona að hér verði umræða einmitt um þessa breytingartillögu sem við erum að leggja fram í Framsókn því að við teljum að það sé skynsamlegri leið gagnvart fólkinu. Það er meiri trygging gagnvart tekjum, það tekur á þessari kjaragliðnun, sem núverandi breytingartillaga og frumvarp er ekki að taka á, og það veitir líka fyrirsjáanleika varðandi ríkissjóð.