almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða breytingartillögu frá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen. Mig langaði bara að byrja á að spyrja hana hvort hún — nú hefur Framsóknarflokkurinn verið tiltölulega mikið við völd undanfarna áratugi — sé sátt við þá aðferðafræði sem hefur verið beitt hingað til við hækkun hjá eldri borgurum og öryrkjum eða í almannatryggingakerfinu; hvort hún hafi skilið hvernig þær hækkanir fóru fram, hvernig sú vísitöluhækkun var fundin á hverjum tíma. Ég skal bara viðurkenna það, svo að það sé á hreinu, að ég skildi stundum hvorki upp né niður í því hvernig hægt var að finna þessa vísitölu út vegna þess að hún stangast yfirleitt ávallt á við bæði kjarasamninga og launaþróun og einhvern veginn fannst mér hún ekki fara eftir 62. gr. sem hún á að fara eftir. Ég spyr hvort hv. þm. hafi talið það skila þeim árangri sem það átti að gera og hvort hún sé sammála því að með þessari aðferð hafi þessi kjaragliðnun orðið til; kjaragliðnun sem eldri borgarar og aðrir hafa bent á að eru orðnar nær 100.000 kr. í dag. Núna er hún með breytingartillögu um það að fjárhæðinni — sem sagt að það eigi að vera 85% af lægsta mánaðarlaunataxta fyrir 18 ára og eldri. Þarna er hún að tala um að þessu verði beitt fyrir bæði eldri borgara og öryrkja, taxti 18 ára krakka, 85% af því. Getur hún upplýst okkur um það hver sú upphæð er, ég sé það hvergi hérna? Hvað er 85% af launataxta 18 ára og eldri?