156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:33]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans andsvar. Ég veit að hann brennur fyrir þessum málaflokki. Hann spurði mig tveggja spurninga ef ég skildi hann rétt. Það var annars vegar hvort að ég skildi þennan útreikning sem hefði verið hingað til gagnvart ellilífeyrisþegum, ekki satt? Það er þannig að árið 2017 var farið í kerfisbreytingar gagnvart almannatryggingum vegna þess að það var mikið af bótaflokkum og mikið ógagnsæi í þessu og það var í rauninni verið, ef við megum orða það þannig, að refsa fólki fyrir að fá einhverjar aukatekjur og olli miklum vandræðum hjá fólki. Því miður er staðan að einhverju leyti enn þá þannig en hins vegar var töluvert af fjármunum — það er á reiki hvort það hafi verið 15 milljarðar eða 18 milljarðar — sett inn í kerfið á þessum tíma. Allir bótaflokkarnir voru teknir út og almannatryggingarnar í raun hækkaðar, almannatryggingalífeyrir eða ellilífeyrir. Þetta var til þess að einfalda kerfið. Þetta var til þess að hækka greiðslur um hver mánaðamót til þessara einstaklinga.

Hins vegar var það ljóst að sú sem hér stendur var einmitt formaður hóps varðandi lífskjör og aðbúnað eldra fólks þar sem við vorum aðeins að greina þetta, hvað þyrfti að gera til að aðstoða fólk sem er að berjast í bökkum hver mánaðamót, þá er verið að horfa til eldri hóps samfélagsins og við lögðum fram vissar tillögur. Mikið af tillögum sem við lögðum til varðandi aðbúnað eru komnar inn í verkefnið Gott að eldast og eru að raungerast, ef þær eru ekki nú þegar búnir að raungerast þar og ég fagna því mikið.

Síðan var bent á að það þyrfti að hækka almenna frítekjumarkið í þrepum. Við gerðum það í fyrsta skipti á síðasta ári, síðasta ríkisstjórn, og ég veit að núverandi ríkisstjórn ætlar að halda því áfram, sem er vel. Ég vona að þeim auðnist að láta það verða að veruleika. Síðan var líka talað um að hækka almennt frítekjumark atvinnutekna og (Forseti hringir.) það var líka gert á síðasta kjörtímabili. Það er búið að gera ýmislegt til að bæta kjör eldri borgara en við þurfum alltaf að halda áfram (Forseti hringir.) þannig að það er það sem núverandi ríkisstjórn er að glíma við og það er það sem fyrrverandi ríkisstjórn var að glíma við. Við þurfum alltaf að finna betri leiðir og athuga hvernig við getum mætt þeim hópum sem verst standa (Forseti hringir.) og þetta er okkar tillaga inn í þá vinnu.