almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Mér gafst hreinlega ekki tími til að fara yfir þetta áðan í mínu fyrra andsvari. Ég er með hérna í tölvunni minni fullt af töflum og gögnum og upplýsingum og ef hæstv. ráðherra vill gefa sér tíma til að setjast niður með mér á eftir þá getum við farið yfir þetta, því að ég er með samanburð á því hvað núverandi frumvarp mun hækka greiðslur til ellilífeyrisþega og síðan hvað þessi tenging, yrði hún að veruleika, myndi hafa áhrif á. Hún mun til lengri tíma litið, vegna þess að hún tengist lægstu launum, hafa þau áhrif að þessi kjaragliðnun mun aldrei halda áfram. En miðað við launavísitölu, þar sem laun geta hækkað og lækkað, þá getur það haft þau áhrif (Gripið fram í.) að kjaragliðnun eykst, út frá umsögn Landssambands eldri borgara, nú er ég að vitna í hana. (Gripið fram í.)Svona fljótt á litið, þótt að ég sé ekki með kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands fyrir framan mig, þá skilst mér að lægstu laun séu rétt tæplega 430.000 kr., þannig að þetta yrði 85% af því. Þetta myndi tengja alltaf við þessi laun. Það er það sem við erum að benda á. Það er fyrirsjáanleikinn sem núverandi frumvarp leggur ekki fram. Þetta eru þær tölur sem ég hef í fljótu bragði. Ég er með tölur, þótt ég hafi þær ekki nákvæmlega hér á blaðinu, og get farið yfir það með hæstv. ráðherra.