almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar andsvar og hennar vinnu í nefndinni í þessu máli og þetta sérálit, að sjálfsögðu, og kannski sérstaklega fyrir að nefna þó umsagnaraðilana ÖBÍ og Landssamtökin Þroskahjálp því í fyrri ræðum hér voru þeir einfaldlega ekki teknir með. Það var eins og einu umsagnaraðilarnir væru Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins. En, eins og ég sagði í upphafi, þá voru einmitt þessir andstæðu pólar sem komu fyrir nefndina og voru með mjög mismunandi skoðanir, útreikninga, viðhorf og hvað eina.
Mig langar aðeins að víkja að þessari tillögu þingmannsins sem er sannarlega viðleitni. En þegar við erum að tala um, eins og segir hér, með leyfi forseta: „Greiðslur almannatrygginga“ — og þarna er talað um allar greiðslur almannatrygginga, hvernig svo sem þær eru og til hverra þær eru — „skulu á hverjum tíma nema að lágmarki 85% af lægsta mánaðarlaunataxta“. Það er samt sem áður bara 85%. Erum við þá ekki alltaf enn þá að tala um að hér sé lægra þrep og það sé alla vega miðað við þetta lágmark, sem er heldur ekkert víst? Og kannski er spurningin líka þessi af því að hér sagði þingmaðurinn alveg klárt að þetta myndi stöðva kjaragliðnunina en síðan heyrðist mér, seinna í ræðu hennar eða andsvari áðan, að með tímanum myndi ekki vera kjaragliðnun. Þetta var svona pínu óljóst og ég kalla eftir meiri skýringum.