156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:42]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem ég er að tala um varðandi þessi 85% er að þegar öryrkjar verða ellilífeyrisþegar halda þeir auðvitað áfram að vera öryrkjar en fara inn í þetta 85% kerfi, sem tengist ellilífeyrisþegum. Með þessari 85% tengingu er verið að taka tillit til lægstu launa Starfsgreinasambandsins, ekki einhverra meðallauna. Þá er þetta bara binding, svona til að einfalda þetta, svipað því og þegar við tengdum íslensku krónuna við dönsku krónuna, þá hélst alltaf bilið á milli. Með því að gera þetta eykst kjaragliðnunin ekki, hún stoppar, en þessi kjaragliðnun sem hefur nú þegar orðið breytist auðvitað ekki. Það þarf að bæta hana með öðrum hætti. Með núverandi frumvarpi og meirihlutaáliti getur þessi kjaragliðnun, og mun að öllum líkindum, að óbreyttu halda áfram að vaxa. Með því að festa þetta við þessi 85% mörk í stað launavísitölu erum við í rauninni að festa þetta frekar í sessi.