almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Ég tek undir að við eigum ekki að vera með neinn bútasaum og þess vegna er þessi breytingartillaga einmitt lögð fram. Varðandi bilið, það kemur hvergi fram, hvorki í frumvarpinu né í meirihlutaálitinu, að þetta muni stöðva og í rauninni koma í veg fyrir þessa kjaragliðnun sem hefur átt sér stað. Það kemur hvergi fram, við sjáum það hvergi í neinum gögnum eða tölum, þannig að þetta bil mun halda áfram og það mun aukast ef ekki verða gerðar breytingar á þessu vegna þess að við sjáum bara hvernig þróun launavísitölu er og verðbólgu, hún hefur áhrif á þetta verði frumvarpið óbreytt að lögum. Hins vegar með því að miða við þessi 85% af lægsta taxta þá dregst ekki lífeyrir aftur úr.
Varðandi bilið og kjaragliðnunina, sem er ekki af hinu góða, þá er samt líka mikilvægt að hafa í huga að fólk sem er á vinnumarkaðnum, ungt fólk jafnvel sem er að taka sín fyrstu skref, eignast börn, eignast fjölskyldu og fleira — það er kannski meiri kostnaður sem fylgir því heldur en þegar við erum orðin eldri og búin að vinna okkur jafnvel í haginn eftir góða starfsævi. Það er það sem ég hef heyrt að séu rökin fyrir því að það sé munur á ellilífeyri og lægstu launum. Ég ætla ekki að fullyrða um slíkt hér heldur er ég einfaldlega að vitna í þær upplýsingar sem ég hef fengið. Eflaust eru skiptar skoðanir á þeim fullyrðingum. En það sem við erum að gera hér í Framsókn er ekki að vera á móti bættum kjörum eldri borgara heldur einfaldlega að koma með tillögur um það sem gætu bætt málið. Ég fór vel yfir þetta í minni framsögu áðan og ég þakka fyrir bæði spurningarnar og eins fyrir góða vinnu í nefndinni.