156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:48]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, við erum að tala um þessa breytingu á lögum um almannatryggingar sem nú er verið að koma í gegn. Það ber að taka það fram í upphafi að sú sem hér stendur og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í velferðarnefnd taka svo sannarlega undir markmið frumvarpsins um að tryggja að kjör elli- og örorkulífeyrisþega dragist ekki aftur úr öðrum hópum. Það er fyrst og fremst sú leið sem er ákveðið að fara sem maður setur spurningarmerki við. Í mínum huga finnst mér þetta snúast um ábyrga fjármálastjórnun. Og í rauninni, eins og þetta er sett fram og miðað við þær athugasemdir sem hafa komið fram, lítur út fyrir að það sé grafalvarlegt að fara þessa leið. Hér koma engar áhyggjur af kostnaði fram og þeir sem benda á það og vara við þessari leið í ljósi áhrifa á ríkisfjármálin hafa í umræðum í dag verið spurðir að því hvort þeir vilji ekki gera vel við öryrkja og þá sem höllum fæti standa. Það eru náttúrlega bara útúrsnúningar. Eins og ég segi: Við viljum öll að kjör okkar minnstu bræðra og systra séu eins góð og hægt er. En það sem ég vek kannski helst athygli á er að það hringja svo sannarlega viðvörunarbjöllur en meiri hlutinn í hv. velferðarnefnd tekur þær ekki til greina og málinu er bara ýtt áfram.

Fyrst og fremst þá er það minnisblað fjármálaráðuneytisins, þar sem kemur fram mjög hörð gagnrýni. Og aðrir, eins og hér hefur komið fram, aðilar vinnumarkaðarins og fleiri, hafa varað við þeirri leið að tengja við launavísitöluna. Mér finnst í raun alveg með ólíkindum að þessi harða gagnrýni sem kemur frá fjármálaráðuneytinu sé bara hunsuð. Þar kemur m.a. fram, með leyfi forseta:

„Tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu getur leitt til sjálfvirkrar aukningar útgjalda óháð stöðu ríkisfjármálanna. Það getur dregið úr möguleikum stjórnvalda til að forgangsraða fjármunum til annarra verkefna og getur stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðarútgjöld aukast sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða að mat fari fram á heildaráhrifum og svo mætti áfram telja.“

Fjármálaráðuneytið gerir líka miklar athugasemdir við það, og fullyrðir það, að ekki hafi farið fram fullnægjandi greining á áhrifum breytinganna og það er bara hunsað. Það er það sem maður setur fyrst og fremst spurningarmerki við. Mátti fara einhverja aðra leið? Við erum öll sammála því að við viljum gera vel við þá sem minnst mega sín í samfélaginu og ég frábið mér að vera vænd um það, eins og sumir hér inni hafa verið vændir um, kannski ekki af þeim sem nú eru í salnum en var í upphafi umræðunnar, að vilja ekki öryrkjum vel og að þetta snúist allt um peninga. Þetta snýst um það að hafa velferðarkerfið í lagi og gera vel við þá sem sannarlega þurfa á því að halda en á sama tíma að huga að opinbera rekstrinum, sem er náttúrlega undirstaða velferðarkerfisins og þessa alls. Viðbrögð hæstv. ráðherra við þessari hörðu gagnrýni fjármálaráðuneytisins voru með eindæmum að mínu mati. Það er bara sagt, það lá í orðanna hljóðan, að ekkert mark verði tekið á þessu, þetta væri bara pólitísk stefna og við hana yrði staðið.

Þá er líka ágætt að velta því fyrir sér að það hafa komið fram ábendingar um að þessi leið geti skapað neikvæða hvata á vinnumarkaði og geti orðið til þess að bætur verði jafnvel hærri en lægstu laun. Og þá er komið í óefni. Það getur varla verið tilgangur bóta, það getur varla verið. Engar greiningar hafa verið lagðar fram af hálfu meiri hlutans, einungis vísað til þess að þetta eigi að gerast. Jú, það hafa komið fram andstæðir pólar í umsögnum en ég er fyrst og fremst að nálgast þetta út frá fjárhagslegri ábyrgð og ábyrgri meðferð með opinbert fé því að það er náttúrlega það sem þetta gengur allt út á og við þurfum að horfa til þess í okkar ákvarðanatöku.

En þetta er ekki eina málið, þessi tenging við launavísitölu, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið og fleiri vara við. Ég get ekki litið fram hjá því að í þessari umræðu er líka verið að leggja fram annað frumvarp um almannatryggingar, um svokallaða víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna. Þar klingja líka viðvörunarbjöllur og það hefur verið harðlega gagnrýnt. Verkalýðsleiðtogar, Alþýðusamband Íslands og fleiri hafa talað um þessar breytingar á almannatryggingakerfinu og varað við þeim og haft uppi stór orð um að hér sé hreinlega um grófa aðför að lífeyrissjóðum verkafólks að ræða og þetta sé í raun algjör afturför. Sitt sýnist því hverjum. En mér finnst vanta inn í þetta, og myndi vilja fá svör við því, af því að hér er nú formaður hv. velferðarnefndar, hvort það teljist ábyrg fjármálastjórn að hunsa álit fjármálaráðuneytisins. Í umsögn ráðuneytisins kemur m.a. fram dálítið áhugaverð tafla um hvernig örorkulífeyrir hefur þróast frá árinu 1997. Ég get ekki séð annað en að það hafi bara verið góð þróun þar. En fyrst og fremst spyr ég: Við hvaða gögn var stuðst þegar fullyrt er að um mikla kjaragliðnun hafi verið að ræða og af hverju er svona mikið mál að drífa þetta í gegn á þessum síðustu dögum þingsins, á þessari önn, án frekari greininga? Það er bara sagt: Þetta skal gert, þetta er pólitísk stefna og engar áhyggjur af kostnaði. Það er hreinlega sagt hérna. Er það ábyrg fjármálastjórnun? Það væri ágætt að fá svör við því þótt ég sé kannski ekki í fyrirspurnatíma, en af því að ég veit að formaður velferðarnefndar mun eflaust vilja svara því.

Þetta er nú það helsta sem mig langaði að koma á framfæri hér því að það er náttúrlega helsta hlutverk og markmið með ábyrgri hagstjórn að fara í vandaðar lagasetningar. Mér sýnist að þarna hefði mátt benda á að kapp sé best með forsjá. En hvort þetta sé það sem koma skal, að málin séu bara keyrð áfram, svona stórmál — af því að nú er svo komið að við erum ekki tryggingasérfræðingar hér í salnum, þingmenn almennt, þess vegna er svo gagnlegt að fá mat sérfræðinga sem hafa brugðist við. Varðandi þessar breytingar á þessu kerfi yfirleitt, bæði með þessu frumvarpi og öðru frumvarpi um víxlverkun sem ég nefndi áðan, eru mjög skiptar skoðanir meðal sérfræðinga. Tryggingasérfræðingur einn, stofnandi eins stjórnarflokksins, Benedikt Jóhannesson, hefur látið hafa það eftir sér nákvæmlega það sem ég var að nefna — hann hefur áhyggjur af þessu af því að þessar aðgerðir geti snúist um sjálfar sig og leitt til þess að enginn fjárhagslegur hvati verði til að snúa aftur á vinnumarkað. Eins og ég sagði í upphafi þá erum við komin á einhvern skrýtinn stað og þessi mál eru komin í óefni ef bætur verða orðnar hærri en lægstu laun. Það getur ekki verið tilgangur og markmið þessa kerfis. Við eigum að aðstoða vel þá sem sannarlega komast ekki í virkni. Það hefur verið farið yfir það hér, og því hefur verið svarað í umræðunni hér í dag, komið inn á það í andsvörum, hvort þingmenn héldu virkilega að fólk vildi ekki vinna, að fólk væri veikt. Og auðvitað er það svo. En þessi hópur er náttúrlega dálítið breiður og stór hluti þeirra sem njóta þessara greiðslna er fólk sem vill komast í virkni og er verið að leiða til virkni og þannig á kerfið að vera. Við eigum ekki að búa til kerfi sem getur leitt til þess að einmitt þeir aðilar hugsi: Nei, kannski hefur það ekkert upp á sig fjárhagslega að fara í þessa virkni sem allir þrá að komast í.

Þetta er í rauninni bara merki um — jú, jú, það er búið að viðurkenna að þetta er bara pólitísk stefna og hún skal ná í gegn. Það eru engar áhyggjur af kostnaði. Sama hvað þetta kostar, skal þetta komast í gegn og umsagnir þeirra sem hafa áhyggjur eru algjörlega hunsaðar og einnig þær viðvörunarbjöllur sem hafa klingt. Og það er ekki síst umsögn fjármálaráðuneytisins — ég veit ekki hvað það gerist oft hér í þinginu, ég hef ekki reynslu af því, að umsagnir eins og minnisblað og ábendingar frá fjármálaráðuneyti séu hunsaðar. Þær eru algerlega hunsaðar og ekkert tekið tillit til þeirra. Það er í raun alveg með ólíkindum. En á þessum stað erum við og ég ítreka og frábið mér að fá hér eða annars staðar umræðu um það að við séum á móti öryrkjum af því að við viljum benda á að það sé jafnvel hægt að fara aðrar leiðir til að bæta kjör þeirra sem þurfa á því að halda og stunda um leið ábyrga fjármálastjórnun, að við búum ekki til eitthvert kerfi sem setur, eins og hér hefur komið fram, bara á sjálfvirkni einstaka liði í fjármálaáætlun hvers árs eða hvers tímabils, setur bara á sjálfvirkni, hækkun, án þess að heildarsamhengi hlutanna sé skoðað. En það væri, eins og ég segi, gaman að fá viðbrögð við því út af hverju menn láta þetta álit fjármálaráðuneytisins sem vind um eyru þjóta; hvort þess megi vænta áfram í störfum hv. velferðarnefndar sem og annarra nefnda hér í þinginu. Það væri gott að fá álit á því hvort hér sé um ábyrga fjármálastjórn að ræða eða ekki.